Lífið

Segist vera ein­hverfur en ekki með geðhvarfasýki

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Lítið hafði farið fyrir hjónunum Kanye West og Biöncu Censori undanfarna mánuði þar til þau skutu upp kollinum á Grammy-hátíðinni um helgina.
Lítið hafði farið fyrir hjónunum Kanye West og Biöncu Censori undanfarna mánuði þar til þau skutu upp kollinum á Grammy-hátíðinni um helgina. Getty

Kanye West segist hafa verið ranglega greindur með geðhvarfasýki og sé í raun einhverfur. Hann þakkar eiginkonu sinni fyrir að senda hann í greiningu og segist hættur að taka geðlyfin sín.

Hinn 47 ára West mætti í vikunni í hlaðvarpið The Download sem samfélagsmiðlafígúran Justin Laboy heldur úti. Þar fór rapparinn um víðan völl og opnaði sig meðal annars um einhverfugreiningu sína.

„Konan mín fór með mig, hún sagði: ,Eitthvað við persónuleikann þinn virkar ekki eins og geðhvarfasýki, ég hef séð geðhvarfasýki áður‘,“ sagði West í hlaðvarpinu á þriðjudag. 

„Kemur í ljós að þetta er í raun einhverfa sem ég er með,“ sagði hann við Laboy en viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan:

Einhverfan skýri margt

West greindi frá því að hann hefði verið greindur með geðhvarfasýki árið 2016 eftir að hann var lagður inn á spítala vegna „geðræns neyðartilfellis“ (e. psychiatric emergency) eins og læknar lýstu því. 

Eftir að einhverfan kom í ljós segir West að allt sem á undan gekk hafi orðið skýrara.

„Þú ert bara: ,Já maður, ég ætla að klæðast þessum Trump-hatti því ég fíla Trump almennt‘,“ sagði hann og bætti við: „Þegar aðdáendur mínir segja mér að gera plötuna mína á einhvern sérstakan hátt, geri ég það akkúrat öfugt.“

West hefur aldrei setið á skoðunum sínum sem hefur ítrekað komið honum í koll. Vandræðin náðu hámarki 2022 þegar andgyðingleg ummæli hans urðu til þess að fjöldi fyrirtækja og samstarfsaðila hættu samstarfi við rapparann. Samkvæmt Forbes tapaði West mörg hundruð milljónum dala vegna málsins.

„Stöðug tilfinning fyrir því að vera ekki með stjórnina leiddi til þess að ég missti stjórnina,“ sagði hann við Laboy.

Hættur að taka lyfin

Nú þegar West telur sig ekki lengur vera með geðhvarfasýki segist hann vera hættur að taka geðlyf við sjúkdómnum. 

Kanye West og Bianca Censori á Grammy-hátíðinni 2025.Jon Kopaloff/WireImage

„Ég hef ekki tekið lyfin síðan ég komst að því að ég væri ekki með geðhvarfasýki, að það væri ekki rétt greining,“ sagði West í viðtalinu. Hann sagðist feginn gera það því lyfin hafi bælt sköpunarkraft hans algjörlega.

Þessa dagana er West að undirbúa næstu plötu sína, Bully, sem á að koma út í sumar. Þar að auki er hann að vinna að fyrstu plötu dóttur sinnar, hinnar ellefu ára North West. Sú var tilkynnt fyrir ári síðan og ku heita Elementary School Dropout sem er vísun í fyrstu plötu föðursins, College Dropout.

West og Censori hafa vakið mikla athygli saman frá því þau giftu sig í desember 2022. Bæði vegna ofstopafullrar framgöngu West og vegna þess að Censori er gjarnan hálfnakin þegar þau fara út á meðal almennings.

Síðustu mánuði hafði lítið farið fyrir þeim tveimur og var talið að hjónabandið væri á barmi skilnaðar. Hjónin skutu síðan aftur upp kollinum á Grammy-hátíðinni um helgina þar sem Censori var í gegnsæjum nælonkjól einum klæða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.