Viðskipti erlent

„Al­var­legt við­skipta­stríð“ hafið

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur beitt umfangsmiklum tollum á ál og stál innflutning.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur beitt umfangsmiklum tollum á ál og stál innflutning. AP/Ben Curtis

Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, setti í gær 25 prósent toll á innflutning á stáli og áli. Evrópusambandið hefur tilkynnt eigin tolla á vörur frá Bandaríkjunum og er útlit fyrir að viðskiptastríð sé hafið.

Tollar Evrópusambandsins munu taka gildi í næsta mánuði en þeir eru á ýmsar vörur frá Bandaríkjunum eins og viskí, heimilistæki, báta og mótorhjól, svo eitthvað sé nefnt. Tollarnir beinast að vörum sem fluttar eru inn til ESB fyrir um 28 milljarða dala, sem er það sama og álið og stálið sem flutt er frá ESB til Bandaríkjanna.

Sjá einnig: Tollar Trump á stál og ál taka gildi

Tollunum er ætlað að þrýsta á Bandaríkjamenn, án þess að valda íbúum Evrópu of miklum skaða. AP fréttaveitan segir þá beinast sérstaklega gegn rauðum ríkjum Bandaríkjanna, en það er gert til að þrýsta frekar á Repúblikana, sem eru við stjórnvölinn í Bandaríkjunum.

Frekari aðgerðir eiga að taka gildi seinna í næsta mánuði, samkvæmt frétt Wall Street Journal.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagðist harma stöðuna í ávarpi í morgun. Hún sagði tolla vera skatta og að þeir komi bæði niður á fyrirtækjum og neytendum.

Störf væru í húfi og að verðlag myndi hækka bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum.

Trump ætlaði að setja fimmtíu prósent toll á ál og stál frá Kanada, vegna gjalds sem Kanadamenn ætluðu að setja á rafmagn frá Kanada sem íbúar þriggja ríkja Bandaríkjanna nota en hætti við eftir viðræður ríkjanna á milli.

Sjá einnig: Vill refsa Kanada svo lesið verði um það í sögubókum

Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, segir „alvarlegt viðskiptastríð“ vera hafið. Noregur, eins og Ísland, er í EES og lendir því á milli Bandaríkjanna og ESB.

Fjölmiðlar í Noregi hafa eftir Støre að hann eigi í viðræðum við ráðamenn í ESB til að koma í veg fyrir að Noregur verði fyrir barðinu á aðgerðum sambandsins.

Óttast að Trump hafi ekki áætlun

Óreiða undanfarinna daga hafa leitt til lækkanna á mörkuðum vestanhafs. Trump-liðar hafa sagt það nauðsynlega hliðarafurð aðgerða ríkisstjórnarinnar en Trump sjálfur neitaði nýverið að útiloka samdrátt í Bandaríkjunum.

Talsmenn og ráðherrar Trumps hafa sagt lækkanirnar vera Joe Biden, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, að kenna.

Forsvarsmenn nokkurra fyrirtækja sóttu Trump heim í Hvíta húsið á mánudaginn þar sem þeir lýstu yfir áhyggjum vegna tollanna og sögðu að þeir gætu komið verulega niður á fyrirtækjunum og hagkerfi Bandaríkjanna.

Eftir fundinn sagði Trump að fundurinn hefði verið um fjárfestingar í Bandaríkjunum.

Mismunandi yfirlýsingar Trumps og ráðgjafa hans, breytingar forsetans á síðustu stundu og skyndilegar tilkynningar um efnahagsaðgerðir hafa samkvæmt Wall Street Journal valdið miklum áhyggjum meðal forsvarsmanna fyrirtækja og ýmsa Repúblikana um að Trump hafi í raun enga fastmótaða áætlun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×