Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. maí 2025 15:45 Rubert Grint, Daniel Radcliffe og Emma Watson, sem léku aðalhlutverkin í myndunum átta um Harry Potter, árið 2011. Getty/Jim Spellman Nú er ljóst hverjir munu leika vinina í hinu goðsagnakennda Harry Potter tríói í væntanlegri sjónvarpsþáttaröð HBO um galdrastrákinn og ævintýri hans.
Dominic McLaughlin mun leika Harry Potter, Arabella Stanton fer með hlutverk Hermione Granger og Alastair Stout verður í hlutverki Ron Weasley. Yfir þrjátíu þúsund leikarar sóttu um hlutverkin frá því HBO opnaði fyrir umsóknir síðastliðið haust. Tökur eru fyrirhugaðar síðar í sumar. „Eftir stórkostlega leit undir stjórn leikstjóranna Lucy Bevan og Emily Brockmann er okkur sönn ánægja að tilkynna að við höfum fundið okkar Harry, Hermione og Ron. Þessir þrír einstaklega efnilegu leikarar búa yfir ótrúlegum hæfileikum og við getum vart beðið eftir að heimurinn fái að sjá töfrana sem þau skapa saman á skjánum. Við viljum jafnframt þakka tugþúsundum barna sem tóku þátt í áheyrnarprufum – það hefur verið sannkallað ánægjuefni að uppgötva hve mikið af ungu leikaraefni er þarna úti,“ segja Francesca Gardiner, höfundur og leikstjóri, og Mark Mylod, framleiðandi og leikstjóri, í sameiginlegri yfirlýsingu sem Variety vísar til. Daniel Radcliffe, Emma Watson og Rupert Grint léku hlutverk vinanna í bíómyndum um Harry Potter sem gerðu þau öll að alþjóðlegum stjörnum upp úr aldamótum. Nú gæti hið sama orðið uppi á teningnum fyrir McLaughlin, Stanton og Stout sem flest eru nýliðar í bransanum. McLaughlin hefur leikið í „Grow“, væntanlegri gamanþáttaröð Sky með Nick Frost og Golda Rosheuvel í aðalhlutverkum. Stanton lék Matildu í samnefndum söngleik á West End á árunum 2023 til 2024. Þá er þetta fyrsta stóra hlutverk Stouts. Aðrir þekktir leikarar sem fengu hlutverk í þáttunum eru John Lithgow (Conclave, The Crown) sem leikur Albus Dumbledore, Janet McTeer (Mission: Impossible – The Final Reckoning, The White Queen) sem fer með hlutverk Minervu McGonagall og Paapa Essiedu (I May Destroy You, Gangs of London) sem leikur Severus Snape. Nick Frost (Shaun of the Dead, Hot Fuzz) verður Rubeus Hagrid, Luke Thallon (Leopoldstadt, Patriots) fer með hlutverk Quirinusar Quirrell og Paul Whitehouse (The Fast Show, Harry & Paul) leikur Argus Filch.
Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Lífið Ljósavinir fögnuðu í Sjálandi Lífið „Ég er pínu meyr í dag“ Lífið Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Lífið Chanel og Snorri eiga von á syni Lífið Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Tónlist Ísraelar fá að vera með í Eurovision Tónlist „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Bíó og sjónvarp Þessi stóðu upp úr hjá Spotify í ár Lífið Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ Lífið Fleiri fréttir „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Yrsa, Hannes og Björg í eina sæng með Thule Sagði „frost í greininni“ og krafði Loga um breytingar Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Udo Kier er látinn Helga Margrét tekur við af Króla Framleiða keflvískan krimma sem gerist á hápunkti kalda stríðsins Æstur aðdáandi óð í Grande Hafnar ásökunum um dónamyndir og segir þveröfugt farið Sópa til sín verðlaunum um heim allan Íslenskur Taskmaster kemur í vor Hannes í víking með gamansama glæpamynd Snýr aftur í leiklistina eftir sjö ára fjarveru Urðað yfir nýja þætti Kim: Núll stjörnu glæpur gegn sjónvarpi Sjá meira