Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar 9. júlí 2025 14:31 Veiðigjaldafrumvarpið sem nú liggur fyrir er ekki tilviljun eða afleiðing einnar ríkisstjórnar. Það er niðurstaða fjögurra áratuga deilna milli útgerðar og almennings. Í gegnum tíðina hefur útgerðin sýnt lítinn sem engan vilja til málamiðlana – og ítrekað talað um kvótann eins og hann sé einkaeign. Þegar staðan hefur verið stál í stál í nær 40 ár, og engin málamiðlun í sjónmáli, þá fer málinu að halla – og annað hvort heldur útgerðin öllu, eða tapar öllu eins og í sríði. The winner takes all. Ég ætla ekki að rengja að einhverjar útgerðir muni skila tapi í kjölfar frumvarpsins – en spyr samt: Af hverju? Og er tapið í raun tap, eða einfaldlega minni gróði en áður t.d vegna afskrifta eigna og/eða kvóta? Það má vel vera að frumvarpið hefði mátt útfæra betur – það skal ósagt látið. En þetta er það sem lýðræðislega kjörinn meirihluti hefur ákveðið að leggja fram og samþykkja. Þá verða menn einfaldlega að una því – ef virðing á að ríkja fyrir lýðræðinu. Útgerð sem gleymdi þjóðinni Það sem skiptir meira máli er hvernig útgerðin hefur hagað sér síðustu ár. Með viðskiptum sem hafa litla tengingu við samfélagslega ábyrgð – þar sem kvóti hefur verið keyptur fyrir hundruð milljarða, oft af óljósum aðilum, og peningarnir horfnir út í óvissuna. Meira að segja byggðarlög hafa verið skilin eftir án atvinnugreinarinnar sem þau byggðu á. Kvóti er tekinn, fluttur – og samfélögin skilin eftir í tómarúmi. Í sumum tilfellum má líkja því við hamfarir – og þá er ekki ýkt. Í Grindavík eru náttúruhamfarir, þar sem fiskurinn kemur ekki lengur að landi (það kostaði ríkið tugi ef ekki hundruð milljarða kr.). Það hefur miklar þjóðhagslegar afleiðingar. En það hefur einnig þjóðfélagslegar afleiðingar þegar fiskurinn er tekinn með valdi úr sjávarplássum og sendur annað – af mannanna völdum. Þetta eru félagslegar hamfarir. Og ábyrgðin liggur hjá útgerðinni. Ótrygg fjárfesting Við skulum líka spyrja: Hvaða fjárfesting er þetta eiginlega sem útgerðin hefur staðið í? Í eðlilegu viðskiptalífi er það talin áhætta að kaupa eign af aðila sem á hana ekki formlega. En hvað eru kvótaviðskipti annað? Nú, þegar veiðigjöldin hækka, koma taprekstrartölur fram. En er það ekki einfaldlega afleiðing fjárfestingar í óöruggri eign? Í venjulegum rekstri ber kaupandinn ábyrgð á eigin áhættu. Hann sýpur seyðið ef fjárfestingin bregst. Það ætti að gilda líka hér. Söguleg skammsýni getur kostað okkur framtíðina Ég styð stjórnarandstöðu að öllu jöfnu – en ef þau halda áfram á braut einhliða hagsmunagæslu, þar sem litið er aðeins til framtíðar án þess að horfa til fortíðar, þá kann illa að fara. Það er engin sanngirni í stefnu sem hundsar reynsluna. Við verðum að læra af því sem var – ef við ætlum að byggja eitthvað betra. Ef grímulaus hagsmunagæsla heldur áfram óáreitt, þá fer hugsanlega enn verr. Höfundur er löggiltur Fasteignasali. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Einar G. Harðarson Breytingar á veiðigjöldum Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. Skoðun Lík brennd í Grafarvogi Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Dagmar Valsdóttir Skoðun Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál Ólafur Stephensen Skoðun Gervigreindin beisluð Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson Skoðun Á jaðrinum með Jesú Daníel Ágúst Gautason Skoðun Er handahlaup valdeflandi? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. skrifar Skoðun Baráttan um kjör eldra fólks Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Svigrúm Eydísar á fölskum grunni Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Lík brennd í Grafarvogi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Er handahlaup valdeflandi? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Á jaðrinum með Jesú Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Gervigreindin beisluð Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar Skoðun Geislameðferð sem lífsbjörg Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Stöðvum helvíti á jörðu Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið er nóg? Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Til þeirra sem fagna Sigurður Gísli Bond Snorrason skrifar Skoðun Að semja er ekki veikleiki – það er forsenda lýðræðis Elliði Vignisson skrifar Skoðun Tekist á um hvort lýðræðið á Íslandi sé virkt eða hvort hefðaréttur sé á völdum Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sumar og sól – en ekki alltaf sátt í sálinni Ellen Calmon skrifar Skoðun Að flokka hver vinnur og hver tapar Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar Skoðun Hagur hluthafanna alltaf og undantekningarlaust í forgangi Jón Kaldal skrifar Skoðun Má berja blaðamenn? Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Vonir um vopnahlé eins og hálmstrá Sveinn Rúnar Hauksson skrifar Skoðun Samfélagið innan samfélagsins Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Til hamingju Íslendingar með nýja Óperu Andri Björn Róbertsson skrifar Skoðun Hvers vegna hatar SFS smábáta? Svarið tengist veiðigjöldum Kjartan Páll Sveinsson skrifar Sjá meira
Veiðigjaldafrumvarpið sem nú liggur fyrir er ekki tilviljun eða afleiðing einnar ríkisstjórnar. Það er niðurstaða fjögurra áratuga deilna milli útgerðar og almennings. Í gegnum tíðina hefur útgerðin sýnt lítinn sem engan vilja til málamiðlana – og ítrekað talað um kvótann eins og hann sé einkaeign. Þegar staðan hefur verið stál í stál í nær 40 ár, og engin málamiðlun í sjónmáli, þá fer málinu að halla – og annað hvort heldur útgerðin öllu, eða tapar öllu eins og í sríði. The winner takes all. Ég ætla ekki að rengja að einhverjar útgerðir muni skila tapi í kjölfar frumvarpsins – en spyr samt: Af hverju? Og er tapið í raun tap, eða einfaldlega minni gróði en áður t.d vegna afskrifta eigna og/eða kvóta? Það má vel vera að frumvarpið hefði mátt útfæra betur – það skal ósagt látið. En þetta er það sem lýðræðislega kjörinn meirihluti hefur ákveðið að leggja fram og samþykkja. Þá verða menn einfaldlega að una því – ef virðing á að ríkja fyrir lýðræðinu. Útgerð sem gleymdi þjóðinni Það sem skiptir meira máli er hvernig útgerðin hefur hagað sér síðustu ár. Með viðskiptum sem hafa litla tengingu við samfélagslega ábyrgð – þar sem kvóti hefur verið keyptur fyrir hundruð milljarða, oft af óljósum aðilum, og peningarnir horfnir út í óvissuna. Meira að segja byggðarlög hafa verið skilin eftir án atvinnugreinarinnar sem þau byggðu á. Kvóti er tekinn, fluttur – og samfélögin skilin eftir í tómarúmi. Í sumum tilfellum má líkja því við hamfarir – og þá er ekki ýkt. Í Grindavík eru náttúruhamfarir, þar sem fiskurinn kemur ekki lengur að landi (það kostaði ríkið tugi ef ekki hundruð milljarða kr.). Það hefur miklar þjóðhagslegar afleiðingar. En það hefur einnig þjóðfélagslegar afleiðingar þegar fiskurinn er tekinn með valdi úr sjávarplássum og sendur annað – af mannanna völdum. Þetta eru félagslegar hamfarir. Og ábyrgðin liggur hjá útgerðinni. Ótrygg fjárfesting Við skulum líka spyrja: Hvaða fjárfesting er þetta eiginlega sem útgerðin hefur staðið í? Í eðlilegu viðskiptalífi er það talin áhætta að kaupa eign af aðila sem á hana ekki formlega. En hvað eru kvótaviðskipti annað? Nú, þegar veiðigjöldin hækka, koma taprekstrartölur fram. En er það ekki einfaldlega afleiðing fjárfestingar í óöruggri eign? Í venjulegum rekstri ber kaupandinn ábyrgð á eigin áhættu. Hann sýpur seyðið ef fjárfestingin bregst. Það ætti að gilda líka hér. Söguleg skammsýni getur kostað okkur framtíðina Ég styð stjórnarandstöðu að öllu jöfnu – en ef þau halda áfram á braut einhliða hagsmunagæslu, þar sem litið er aðeins til framtíðar án þess að horfa til fortíðar, þá kann illa að fara. Það er engin sanngirni í stefnu sem hundsar reynsluna. Við verðum að læra af því sem var – ef við ætlum að byggja eitthvað betra. Ef grímulaus hagsmunagæsla heldur áfram óáreitt, þá fer hugsanlega enn verr. Höfundur er löggiltur Fasteignasali.
Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson Skoðun
Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson Skoðun
Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar
Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar
Skoðun Stöðvum helvíti á jörðu Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar
Skoðun Tekist á um hvort lýðræðið á Íslandi sé virkt eða hvort hefðaréttur sé á völdum Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir skrifar
Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson Skoðun
Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson Skoðun