Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Magnús Jochum Pálsson skrifar 25. júlí 2025 15:35 South Park eru óhræddir við að ögra forsetanum og fylgjendum hans í nýjasta þættinum. Höfundar South Park, Trey Parker og Matt Stone, fögnuðu nýjum 1,5 milljarðs dala samningi við Paramount+ með því að gefa út nýjan þátt þar sem þeir sýna Donald Trump á typpinu og uppi í rúmi með Satan.
Parker og Stone skrifuðu undir samning við streymisveituna Paramount+ á fimmtudag um að South Park yrðu einungis sýndir á veitunni næstu fimm árin. Þeir félagar eru sagðir hagnast ríkulega á samningnum, eða um 1,5 milljarð dala (181 milljarð íslenskra króna). Djöfullinn ræðir við Trump um Jeffrey Epstein og Saddan Hussein í þættinum. Degi síðar kom út fyrsti þáttur 27. seríu South Park sem ber heitið „Sermon on the mount“ sem er vísun í fjallræðu Jesú Krists úr Mattheusarguðspjalli. Óhætt er að segja að þátturinn sé einn sá allra svakalegasti í sögu þáttanna og beina þeir félagar spjótum sérstaklega að Donald Trump sem er látinn ganga til rekkju með djöflinum, ræða við hann um Jeffrey Epstein og bera síðan getnaðarlim sinn. Allsber Trump í eyðimörkinni Á einum tímapunkti skiptir þátturinn úr hefðbundinni teiknimynd yfir í raunsæislegt djúpfalsað myndefni af Trump sem þeir félagar kalla „Pro-Trump Public Service Announcement“ sem mætti snara á íslensku sem „Almannatilkynning til stuðnings Trump“. Í mínútulöngu myndefninu má sjá Trump ráfa gegnum eyðimörk og berstrípa sig meðan sögumaður lýsir yfir kostum forsetans og afrekum. Myndefnið er ekki fyrir viðkvæma og er bannað börnum. „Hver gegnum eyðimörkina fyrir þig? Hver lifði af óbyggðirnar og færði endanlega fórn þegar tók að hitna í kolunum? Hver mun leiða oss frá freistni? Donald J. Trump,“ segir sögumaðurinn í þann mund sem Trump fer úr jakkafötunum og gengur áfram á nærbuxum og sokkum einum klæða. Þátturinn sýnir gervigreindarskapað útgáfu af Trump afklæðast. „Sama hve heitt verður er hann ekki hræddur við að berjast fyrir Bandaríkin, með sannfæringu, trausti og trú á Guð lifði hann eyðimörkin af,“ segir sögumaðurinn um leið og Trump fer úr nærbuxunum og leggst berrassaður í sandinn. Á bakinu horfir hann niður á lim sér sem er skyndilega kominn með augu og munn og segir skrækri röddu: „Ég er Donald J. Trump og ég tek undir þessi skilaboð.“ „Trump. Typpið hans er pínuponsulítið en ást hans á okkur er mikil,“ segir sögumaðurinn að lokum. „Hræsni vinstrisins á sér engin takmörk“ Paramount hefur ekki átt sjö dagana sæla síðustu vikur. Fjölmiðlafyrirtækið samþykkti að greiða sextán milljón dala sátt til forsetabókasafns Donald Trump, vegna viðtals 60 mínútna við Kamölu Harris, frekar en að takast á við forsetann fyrir dómstólum. Paramount er sagt hafa tekið ákvörðunina til að liðka fyrir 8 milljarða samruna fyrirtækisins við Skydance. Sjá einnig: Paramount lúffar fyrir Trump og greiðir bætur vegna Kamölu Þáttastjórnandinn Stephen Colbert, sem hefur stýrt Late Show á CBS síðastliðin fimmtán ár, lýsti sáttinni sem „stórum feitum mútum“ áður en þáttur hans var lagður niður. Trump fagnaði því ákaft og lýsti því yfir að aðrir þáttastjórnendur fengju að fjúka næst. Þáttastjórnandinn Jon Stewart, sem stýrir þættinum Daily Show á Comedy Central sem Paramount á, brást við brottrekstri Colbert með því að láta gospelkór leiða áhorfendur í söng þar sem var ítrekað sungið „fokkið ykkur“ og því beint að Paramount. Nú er komið að South Park að níðast á yfirboðurum sínum en Hvíta húsið hefur þegar brugðist við þættinum. „Hræsni vinstrisins á sér engin takmörk - í mörg ár hafa þeir farið á eftir South Park vegna þess sem þeir kalla ,særandi' efni en skyndilega hrósa þeir þættinum,“ sagði Taylor Rogers, aðstoðarfjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins við fréttamiðilinn Deadline í gærmorgun. „Rétt eins og höfundar South Park á vinstrið ekkert raunverulegt eða frumlegt efni, sem er ástæðan fyrir því að vinsældir þess halda áfram að ná nýjum lægðum,“ bætti hann við. Atriðið endar á vægast svakalegum nótum. „Þessi þáttur hefur ekki skipt máli í meira en tuttugu ár og hangir á bláþræði með ófrumlegum hugmyndum í örvæntingarfullri tilraun til að ná athygli. Trump forseti hefur haldið fleiri loforð sín á sex mánuðum en nokkur annar forseti í sögu landsins og enginn fjórða flokks þáttur getur stöðvað sigurgöngu Trump,“ sagði hann jafnframt. Trump á sjálfur enn eftir að tjá sig og það er spurning hvort þátturinn muni leiða af sér frekari afleiðingarnar og hvort hann muni hafa áhrif á væntanlegan samruna Paramount og Skydance.
Bandaríkin Donald Trump Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira