Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. júlí 2025 06:29 Lögregla naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra í nótt. Vísir/Vilhelm Nóttin var fremur róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en fjórir gistu fangageymslur í morgun.
Í yfirliti lögreglu er aðeins greint frá fjórum málum en þar segir meðal annars frá ungum mönnum á bifreið, sem voru að leika sér að því að skjóta gelkúlum úr leikfangabyssu að öðrum vegfarendum. Lögregla ræddi við mennina, sem eru sagðir hafa iðrast og lofað bót og betrun. Lögreglu barst einnig tilkynning um menn sem voru sagðir hafa gengið inn á bar og ráðist á mann. Einn þeirra var sagður hafa dregið upp hníf en ekki beitt honum. Bæði gerendurnir og þolandinn voru á brott þegar lögreglu bar að garði. Rætt var við vitni en brotaþoli hefur ekki fundist og málið þannig sagt í pattstöðu. Í póstnúmerinu 110 var tilkynnt um mann sem var sagður hafa gengið berserksgang við íbúðakjarna. Hafði hann ráðist á íbúa, haft í hótunum og skemmt eigur. Maðurinn var handtekinn og á honum fundust fíkniefni. Hann gistir fangageymslur þar til hann verður viðræðurhæfur. Einn var stöðvaður í umferðinni undir áhrifum fíkniefna, sem er ef til vill ekki í frásögur færandi nema af því að þetta ku hafa verið í tólfta skiptið sem viðkomandi var stöðvaður við akstur án ökuréttinda.
Lögreglumál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira