Fyrsti sigur á Svíum í 33 ár og feðgar í aðalhlutverki í báðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2025 08:33 Jón Axel Guðmundsson var atkvæðamikill í sigrinum á Svíum eins og faðir hans rúmum þremur áratugum áður. Vísir/Anton Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann þriggja stiga sigur á Svíum á æfingamóti í Portúgal í gærkvöldi og það var búið að bíða eftir þessum sigri.
Íslenska landsliðið hafði tapað síðustu sjö landsleikjum sínum á móti Svíþjóð og ekki tekist að vinna Svía í rúm 33 ár. Síðasti sigurinn á undan þessum var á Norðurlandamótinu í Osló í Noregi 8. maí 1992. Íslenska liðið vann þá sjö stiga sigur, 83-76. Valur Ingimundarson var stigahæstur með 20 stig Guðmundur Bragason skoraði 18 stig og Magnús Helgi Matthíasson var með 17 stig. Aðrir í stórum hlutverkum voru meðal annars Jón Kr. Gíslason (8 stig), Teitur Örlygsson (7 stig), Axel Nikulásson (7 stig) og Tómas Holton (4 stig). Svo skemmtilega vill til að sonur næststigahæsta leikmanns Íslands i þessum Svíasigri á síðustu öld var stigahæstur í íslenska liðinu í gærkvöldi. Jón Axel Guðmundsson skoraði 16 stig í gær og var líka með 5 fráköst, 4 stoðsendingar og 2 stolna bolta. Íslenska liðið vann leikinn 73-70 þar sem Jón Axel skoraði meðal annars fjögur stig í einni sókn á lokakafla leiksins. Martin Hermannsson var með 14 stig og 4 stoðsendingar, Tryggvi Snær Hlinason skoraði 10 stig og tók 12 fráköst og Elvar Már Friðriksson var með 8 stig og 5 stoðsendingar. Faðir Elvars, Friðrik Ragnarsson, tók einnig þátt í leiknum 1992.
Landslið karla í körfubolta EM 2025 í körfubolta Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira