Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. ágúst 2025 07:14 Flugþjónarnir láta engan bilbug á sér finna og krefjast þess að fá greitt fyrir unnin störf. Getty/Andrej Ivanov Forsvarsmenn stéttarfélags flugþjóna Air Canada segja félagsmenn sína ekki munu snúa aftur til vinnu, þrátt fyrir fyrirskipanir yfirvalda þar að lútandi. Flugþjónarnir lögðu niður störf á laugardagsmorgun og um það bil 1.400 flugferðir voru felldar niður um helgina.
Starfsmennirnir, sem eru um 10 þúsund talsins, krefjast kjarabóta og ekki síst að fá greitt fyrir störf sín eftir lendingu og fyrir flugtak en eins og sakir standa fá þeir aðeins greitt frá því að hurðunum að vélinni er lokað og þar til þær eru opnaðar á ný. Flugþjónarnir höfðu ekki verið í verkfalli í tólf klukkustundir þegar vinnumálaráðherrann Patty Hajdu fyrirskipaði sáttanefnd að leggja fram bindandi miðlunartillögu og binda enda á verkfallsaðgerðirnar. Forsvarsmenn stéttarfélags opinberra starfsmanna gaf þá frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að inngrip stjórnvalda bryti gegn stjórnarskrá landsins og gegn réttindum flugþjónanna. Sjötíu prósent þeirra væru konur og hundrað prósent væru krafin um vinnuframlag án greiðslu fyrir. „Verkfallsaðgerðirnar halda áfram. Við krefjumst sanngjarns, umsamins samnings og að fá greitt fyrir allar unnar starfsstundir,“ sagði í yfirlýsingunni. Air Canada er langstærsta flugfélagið í Kanada en það flýgur meðal annars til 65 landa. Fyrirtækið hefur átt í miklum vandræðum eftir að verkfallaaðgerðirnar hófust, enda um háannatíma að ræða. Farþegar í vandræðum hafa kvartað yfir því að ná ekki sambandi við fyrirtækið.
Kanada Fréttir af flugi Kjaramál Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira