Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. september 2025 13:33 Pablo Bertone í oddaleik Vals og Tindastóls um Íslandsmeistaratitilinn 2023. Hann fékk fimm leikja bann fyrir framkomu sína eftir leikinn. vísir/bára Körfuboltamaðurinn Pablo Bertone er á leið til Íslandsmeistara Stjörnunnar. Hann byrjar tímabilið í fimm leikja banni.
Bertone þekkir vel til hér á landi en hann lék með Haukum og Val og varð Íslandsmeistari með síðarnefnda liðinu 2022. Í samtali við Vísi í dag staðfesti Einar Karl Birgisson, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar, að Bertone væri á leið til Garðabæjarliðsins. Einhver bið verður þó á því að Bertone spili fyrir Stjörnuna því hann þarf að taka út fimm leikja bann sem hann var úrskurðaður í eftir síðasta leik sinn fyrir Val. Eftir oddaleik Vals og Tindastóls um Íslandsmeistaratitilinn 18. maí 2023 fór Bertone inn í herbergi dómaranna. Fyrir það var hann úrskurðaður í fimm leikja bann. Stjarnan mætir Val í Meistarakeppni karla 28. september. Fyrstu fjórir leikir liðsins í Bónus deildinni eru svo gegn KR 2. október, Val 11. október, Keflavík 17. október og ÍR 24. október. Aðspurður hvort Stjarnan myndi færa Bertone yfir til venslafélagsins KFG til að láta hann sitja af sér hluta af banninu þar sagði Einar að það hefði ekki verið rætt en sá möguleiki væri fyrir hendi. KFG verður búið að spila tvo leiki í 2. deildinni þegar keppni í Bónus deildinni hefst. Tímabilið 2022-23 skoraði Bertone 15,4 stig, tók 4,2 fráköst og gaf 3,5 stoðsendingar að meðaltali í leik í deildarkeppninni. Í úrslitakeppninni var hann með 14,3 stig, 4,9 fráköst og 3,3 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Bónus-deild karla Stjarnan Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Sjá meira