Sammála um aukna verðbólgu í september Árni Sæberg skrifar 12. september 2025 11:02 Helsta ástæðan fyrir aukinni verðbólgu er sú að áhrif gjaldfrjálsra skólamáltíða detta út í septembermælingunni. Vísir/Vilhelm Bæði Landsbankinn og Íslandsbanki spá því að verðbólga fari á ný yfir efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans í næstu mælingu. Landsbankinn spáir 4,1 prósents verðbólgu en Íslandsbanki 4,2 prósenta.
Verðbólga hjaðnaði nokkuð óvænt milli mánaða í síðustu mælingu og stendur nú í 3,8 prósentum, undir fjögurra prósenta efri vikmörkum verðbólgumarkmiðsins. Bæði Íslandsbanki og Landsbankinn höfðu þá spáð því að verðbólgan myndi standa í stað í fjórum prósentum. Gjaldfrjálsu máltíðirnar detta út Landsbankinn birti nýja verðbólguspá í gær og spáði því að verðbólga myndi aukast á ný í september og mælast 4,1 prósent. Aukin verðbólga muni aðallega skýrast af því að í september í fyrra hafi máltíðir í grunnskólum verið gerðar ókeypis og lækkunaráhrifin af því detti nú út úr ársverðbólgunni. Verðhækkun á mjólkurafurðum leiði til meiri hækkunar á matvöruverði en síðustu mánuði. Ró yfir húsnæðismarkaðnum haldi aftur af hækkunum á reiknaðri húsaleigu en útsölulok hafi áhrif til hækkunar í mánuðinum, gangi spáin eftir. Íslandsbanki ögn svartsýnni Íslandsbanki birti sína spá í morgun og spáði því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15 prósent í september frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir muni verðbólga aukast úr 3,8 prósentum í 4,2 prósent og fara aftur á ný yfir fjögurra prósenta efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans. „Helsta ástæða fyrir aukningu ársverðbólgunnar er sú að í september í fyrra lækkaði vísitalan um 0,3% á milli mánaða vegna þess að skólamáltíðir í grunnskólum urðu gjaldfrjálsar. Þessi áhrif fjara út með nýrri septembermælingu. Við teljum að ársverðbólga verði með svipuðu móti næstu mánuði og mun mælast rétt yfir efri vikmörkum Seðlabankans. Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs þann 25. september næstkomandi.“
Fjármálafyrirtæki Íslandsbanki Landsbankinn Verðlag Efnahagsmál Íslenska krónan Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira