Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Agnar Már Másson skrifar 14. september 2025 11:20 Tyler Robinson er grunaður um að skjóta Charlie Kirk til bana. AP Trans sambýliskona Tylers Robinsons, sem grunaður er um að bana íhaldsama áhrifavaldinum Charlie Kirk, er gríðarlega samvinnuþýð að sögn lögreglu. Hún hafi verið „skelfingu lostin“ þegar hún heyrði fréttirnar. Áður en Robinson var handtekinn grínaðist hann með að maðurinn sem lögregla lýsti eftir væri „tvífari“ sinn í spjalli á Discord.
Charlie Kirk hafði verið nýspurður út í trans skotárásarmenn í skólum þegar hann var skotinn til bana á almannafæri á miðvikudag í Utah Valley háskólanum. Kirk var afar gagnrýninn á það sem hann kallaði „hinsegin stefnu“ og lagðist gegn kynleiðréttingarferli. Kirk hefur sagt trans hreyfinguna vera ógn við börn og fjölskyldur og lýst andstöðu við trans fólk í íþróttum og skólaumhverfi. Lögreglan við rannsókn fyrir utan heimili fjölskyldu Robinsons í Saint George. AP Hinn 22 ára Tyler Robinson var handtekinn vegna morðsins á föstudag eftir að fjölskylduvinur tilkynnti hann til yfirvalda í kjölfar þess að 33 tíma leit lögreglu hafði ekki borið árangur. Hann mun hafa viðurkennt ódæðið í samtali við föður sinn samkvæmt því sem miðlar vestanhafs hafa eftir heimildarmönnum sínum innan lögreglu. Yfirvöld rannsaka nú hvort Robinson telji skoðanir Kirks á kynvitund vera hatursfullar, samkvæmt heimildum Axios, en rannsakendur telja það geta verið mögulega skýringu á ódæðisverkinu. Axios hefur eftir sex heimilismönnum sem þekkja til málsins að Robinson og konan hafi átt í rómantísku sambandi. Fox News hefur einnig eftir heimildarmanni í alríkislögreglunni að þau ættu í rómantísku sambandi. New York Post hefur eftir heimildum að hún hafi verið maki Robinsons. Hjálpsöm lögreglu Konan heitir Lance Twiggs og er sögð vera atvinnutölvuleikjaspilari, að sögn New York Post. Hún býr með Robinson og tveimur öðrum en samkvæmt málsgögnum sem Daily Mail kveðst hafa undir höndum sýndi hún lögreglunni SMS-skilaboð þar sem Robinson er sagður hafa nefnt að hann hafi falið byssu sem tengdist skotárásinni. Hún mun hafa verið „skelfingu lostin“ þegar hún heyrði af árásinni, samkvæmt heimildarmönnum Axios. Í skilaboðum sem Twiggs lét yfirvöldum í té kemur fram að Robinson hafi vafið riffli í handklæði og falið hann í runna nálægt háskólanum, að sögn Axios. Samkvæmt Fox News er kærasta Robinsons „gríðarlega samvinnuþýð“ að sögn fólks innan alríkislögreglunnar en lögreglan hefur ekki sagt hvort hún verði ákærð fyrir glæp. „Tyler drap Charlie!!!!“ Áður en Robinson var handtekinn hafði hann sent vinum sínum skilaboð sem sýna að hann hafi fylgst grannt með fréttum af morðmálinu, samkvæmt gögnum sem New York Times fékk frá gömlum vini Robinsons, og skýrsla sem New York Post hefur yfir höndum hefur svipaða sögu að segja. Þegar yfirvöld birtu mynd af hinum eftirlýsta var Robinson taggaður í skilaboðum í lokuðum Discord-hóp enda þótti sá sem leitað var að svipa til Robinsons. Robinson svaraði að þarna hlyti „tvífari“ hans vera á ferð að reyna að „koma mér í vandræði“. „Tyler drap Charlie!!!!“ bætti einn við, ánægður að því er virðist. Alinn upp af repúblikönum Lögregluyfirvöld rannsaka nú vinstri sinnaða hópa í Utah til að athuga hvort þeir hafi haft vitneskju af áætlunum meinta morðingjans eða ef þeir hafi hjálpað honum eftir árásina. Axios segir að einn slíkur hópur hafi eytt samfélagsmiðlareikningi sínum eftir árásina. Óljóst er hvað gæti hafa knúið meinta morðingjann til verksins og hafa harðar umræður skapast um það í netheimum. Sumir íhaldsmenn telja hann óheflaðan vinstri mann en vinstrivængurinn ber fyrir sig að hann hafi verið alinn upp á hægrisinnuðu heimili. Robinson er samkvæmt opinberum gögnum ekki skráður í flokk og hefur aldrei kosið en foreldrar hans eru þó skráðir í Rebúblikanaflokkinn og eru virkir skotveiðimenn. Hann og bræður hans sjást á fjölskyldumyndum á samfélagsmiðlum stilla sér upp með riffla. Robinson kemur úr mormónafjölskyldu en hvergi eru fleiri mormónar en í Utah. Samkynhneigt kynlíf eða sambúð eru ekki samþykkt í trúfélaginu og kynvitund sem er ekki í samræmi við líffræðilegt kyn er almennt ekki viðurkennd af kirkjunni sem „guðleg“ eða „rétt“. Nágrannar og fyrrverandi bekkjarfélagar hafa lýst Robinson sem feimnum og hlédrægum en hann þótti afburðanemandi og var á þriðja ári í rafvirkjanámi. Gamlir vinir hans lýsa því þó að hann virðist hafa einangrast meira á síðustu árum. Hann er sagður lengi hafa haft áhuga á tölvuleikjum en á skothylkjum sem fundust á vettvangi var búið að rista skilaboð sem voru ýmist tilvísanir í tölvuleiki eða Internetslangur.
Málefni trans fólks Morðið á Charlie Kirk Bandaríkin Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Sjá meira