Baywatch aftur á skjáinn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. september 2025 18:48 Alexandra Paul, David Charvet og Pamela Anderson í hlutverkum sínum í Baywatch árið 1993. Arnold Slater/Mirrorpix/Getty Images Bandaríska sjónvarpsstöðin Fox hyggst framleiða glænýja seríu af Baywatch þáttunum sem gerðu allt vitlaust á tíunda áratugnum og voru langvinsælustu þættir í heimi. Fox hyggst framleiða tólf glænýja þætti með glænýju fólki.
Það er Variety sem greinir frá þessu. Fyrsta sería þáttanna kom út árið 1989 og komu út alls ellefu seríur, 250 þættir. Þeir nutu mikilla vinsælda, voru raunar vinsælustu þættir í heimi um margra ára skeið, enda mátti sjá góðan hóp af föngulegu fólki lífvarða á sundklæðum einum fata. Fremst í flokki voru David Hasselhoff og Pamela Anderson líkt og flestir eflaust muna eftir. Þættirnir skutu svo fleiri leikurum upp á stjörnuhimininn líkt og Carmen Electra og Jason Momoa. Í grein Variety segir að Fox hyggist láta framleiða tólf nýja þætti og að serían eigi að vera sýnd í sjónvarpi og á streymisveitum milli 2026 til 2027. Það verði höfundur þáttanna Greg Bonann sem auk Matt Nix muni framleiða þættina fyrir nýjar kynslóðir. Ekki hefur verið tekið ákvörðun um það hvaða leikarar munu koma til með að hlaupa í „slow-mo“ á ströndinni. Fyrir þá sem aldrei horfðu á Baywatch eða vilja rifja upp er upphafsatriði þáttanna hér fyrir neðan.
Bíó og sjónvarp Hollywood Tímamót Mest lesið Salka Sól látin fara Lífið Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Lífið Mun aldrei flytja aftur heim Lífið Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið Trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli vegna meintrar sprengju Lífið Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Tónlist „Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Lífið Draumalíf: Fékk Ísland á heilann átta ára Áskorun Vinslit, ofbeldi, líkamssmánun og niðurlæging í ANTM Lífið Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Fleiri fréttir Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira