Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Atli Ísleifsson skrifar 26. september 2025 12:31 Steinþór Pálsson. Steinþór Pálsson hefur verið ráðinn forstjóri Thor landeldis.
Í tilkynningu segir að hann muni stjórna áframhaldandi uppbygginu laxeldisstöðvar fyrirtækisins í Þorlákshöfn. Steinþór sé reyndur stjórnandi með viðamikla reynslu í íslensku og alþjóðlegu viðskiptalífi. Síðustu ár hafi hann starfað sem sjálfstæður ráðgjafi en var áður meðeigandi hjá KPMG og bankastjóri Landsbankans. Steinþór er með Cand. Oecon. gráðu frá Háskóla Íslands og MBA frá Edinborgarháskóla. Ásamt því að hafa verið ráðgjafi og meðeigandi KPMG og bankastjóri Landsbankans var hann framkvæmdastjóri hjá Actavis, bæði á Íslandi og erlendis. „Það eru gríðarleg tækifæri í landeldi á laxi og sérstaklega hér á Íslandi þar sem aðstæður eru einstakar,“ er haft eftir Steinþóri. „Það er ákveðinn vendipunktur fram undan í starfsemi Thor landeldis. Að baki er vönduð undirbúningsvinna sem gerir fyrirtækinu kleift að sækja fram af miklum krafti næstu misseri. Mér finnst spennandi að taka þátt í þeirri uppbyggingu ásamt því góða teymi sem hefur komið félaginu á þennan stað.“ Ný seiðastöð opnuð Ný seiðastöð var tekin í notkun í maí síðastliðnum þegar fyrstu hrognin voru sett í hrognaskápa og seiðin eru vel á legg komin. Framkvæmdir við eldisstöðina hófust í júlí í fyrra og mun hún geta framleitt allt að fjórar milljónir seiða á ári. „Uppbygging Thor landeldis hefur staðist væntingar og áætlanir undir stjórn núverandi stjórnendateymis. Búið er að fjármagna fyrsta áfanga áframeldisstöðvar sem mun hafa árlega framleiðslugetu upp á 4.750 tonn,“ segir Jónas Engilbertsson stjórnarformaður Thor. Hann segir Steinþór Pálsson vera öfluga viðbót við teymið, enda búi hann að viðamikilli reynslu af uppbyggingu fyrirtækja hér heima og erlendis. „Með ráðningu Steinþórs styrkjum við teymið enn frekar og erum sannfærð um að framhaldið verði farsælt.“ Áframeldi hefst á næsta ári Gert er ráð fyrir að fyrstu seiðin fari í áframeldi sumarið 2026 hjá Thor og er langtímamarkmið fyrirtækisins að framleiða allt að 20 þúsund tonn af laxi árlega. Thor tryggði sér 4 milljarða króna fjármögnun frá núverandi hluthöfum í apríl með IS Haf fjárfestingar sem kjölfestufjárfesti og er því vel fjármagnað til áframhaldandi vaxtar. Jónatan Þórðarson framkvæmdastjóri fiskeldis og Þórður Þórðarson lögfræðingur mynda framkvæmdastjórn Thor landeldis ásamt Steinþóri Pálssyni. Halldór Ragnar Gíslason, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra, hefur sagt starfi sínu lausu en mun vera nýjum forstjóra til ráðgjafar fyrst um sinn. Halldóri eru þökkuð vel unnin störf við uppbyggingu og stofnun félagsins og óskar stjórn honum velfarnaðar í komandi verkefnum.
Landeldi Fiskeldi Vistaskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Sjá meira