Netvís tekur við af SAFT Lovísa Arnardóttir skrifar 3. október 2025 08:50 Starfsmenn Netvís. Fjölmiðlanefnd Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands hefur hafið formlega starfsemi og tekur við hlutverki SAFT sem íslenskt Safer Internet Centre. Í tilkynningu segir að með stofnun miðstöðvarinnar hafi verið stigið mikilvægt skref í átt að öruggara, ábyrgara og heilbrigðara stafrænu samfélagi.
Netvís starfar undir Fjölmiðlanefnd og heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið. Netvís mun samkvæmt tilkynningu gegna hlutverki miðlægrar upplýsingamiðstöðvar um félagslegt netöryggi og miðlalæsi og á að vera leiðandi í rannsóknum, fræðslu, forvörnum og vitundarvakningu á því sviði. Meginmarkmið miðstöðvarinnar verður að efla þekkingu, hæfni og vitund almennings til öruggrar og ábyrgrar þátttöku í stafrænu samfélagi, með sérstakri áherslu á vernd barna og ungmenna gegn ofbeldi og misnotkun á netinu. „Það er mikið gleðiefni að geta loksins svipt hulunni af afrakstri vinnu síðustu ára og kynnt Netvís til leiks. Netöryggi snertir okkur öll og á sér tvær hliðar, þ.e. bæði tæknilegt og félagslegt. Í netöryggisáætlunum landsins ætti alltaf að horfa bæði til þess að tryggja tæknilega innviði og vernda fólk sem notendur. Sviðið teygir anga sína víða, allt frá fræðslu til barna og ungmenna, yfir í alþjóðlegt samstarf og að standa vörð um lýðræði og þjóðaröryggi. Stofnun Netvís er löngu tímabært skref og hlökkum við til þess að vinna markvisst að því að efla hugtakaskilning, vitund og valdeflingu almennings á þessu sviði“, segir Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands. Stýrihópur Netvís er skipaður fulltrúum ráðuneyta og helstu samstarfsaðila og sérstakt ráðgjafaráð þess tryggir breiða og öfluga þátttöku mismunandi hagsmunaaðila. Hægt er að kynna sér málið betur á vef miðstöðvarinnar, netvis.is. Í tilkynningu segir að starfsfólk miðstöðvarinnar muni vera virkir þátttakendur í alþjóðlegu samstarfi um netöryggi og miðlalæsi í gegnum evrópsku tengslanetin Insafe og INHOPE, sem sameina netöryggismiðstöðvar og ábendingarlínur víðsvegar um Evrópu. Einnig mun Netvís taka þátt í samstarfi á vettvangi EBMS og EPRA, þar sem áhersla verður lögð á vernd lýðræðisins með auknu viðnámsþoli þjóða gegn upplýsingaóreiðu.
Netöryggi Börn og uppeldi Tækni Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira