Svindl eða sjálfsvernd? Sigurður Árni Reynisson skrifar 3. október 2025 10:31 Það hefur lengi verið þekkt að börn skrökvi stundum eða leiti leiða til að komast hjá því að axla ábyrgð. En, þegar við sjáum barn í grunnskóla svindla á prófi og síðan neita að viðurkenna það, þá vaknar önnur spurning. Snýst þetta aðeins um hegðun barnsins eða endurspeglar þetta líka það umhverfi sem við sem menntasamfélag höfum skapað? Á undanförnum árum hafa margir kennarar, foreldrar og fræðimenn velt því fyrir sér hvort áherslan á árangur í skóla sé orðin of mikil. Við tölum um mikilvægi læsis og stærðfræðifærni, við reiknum út árangur í stigum og prósentum og við berum saman börn í hópum og á milli skóla. Það er auðvelt að gleyma því að á bak við þessa mælikvarða eru lifandi einstaklingar sem eru að læra að þekkja sjálfa sig og finna styrkleika sína. Þegar barnið upplifir að það sé dæmt fyrst og fremst út frá tölum og árangri getur það orðið til þess að t.d. svindl virðist einfaldari leið en að horfast í augu við eigin mistök eða veikleika. Flest börn vilja standa sig vel. Það liggur djúpt í mannlegu eðli að vilja viðurkenningu, hrós og að tilheyra hópnum. Þegar kröfurnar verða hins vegar of miklar, þegar prófið verður mælikvarði á verðleika barnsins, breytist ótti við mistök í yfirþyrmandi afl. Þá verður lygin eða svindlið ekki bara til að ná betri einkunn heldur til að verja sjálfsmyndina. Á miðstigi í grunnskóla, þar sem börn eru að stíga inn í unglingsárin, verður sjálfsmyndin sérstaklega viðkvæm. Það sem áður var saklaus tilraun til að komast undan skömm á yngri árum getur nú orðið kerfisbundið mynstur, það er að fela, að afneita og að grípa til óheiðarleika til að lifa af í krefjandi umhverfi. Í nútímamenntakerfi er sífellt meiri áhersla lögð á mælanlegar niðurstöður. PISA-próf, lesfimi, samræmd könnunarpróf og lokaeinkunnir eru settar fram sem lykilviðmið. Þó að þessi tæki hafi ákveðið gildi, þá skapa þau líka ákveðna menningu þar sem þættir eins og seigla, forvitni, sköpun og samkennd eru ekki mæld og geta þar með orðið að aukaatriðum. Barn sem finnur fyrir þrýstingi að fá háa einkunn lærir fljótt að reikna út hvað borgar sig. Ef það telur að það hafi ekki getu til að ná árangri á heiðarlegan hátt verður svindlið rökrétt skref. Og þegar það er staðið að verki er neitunin enn eina leiðin til að vernda sig frá því að falla niður í augum annarra. Við getum ekki einblínt á barnið eitt og sér í þessu samhengi. Börn læra af því sem þau sjá í kringum sig. Þegar þau sjá að fullorðnir forðast að taka ábyrgð, þegar þau skynja að virði fólks sé mælt í afrekum og titlum, þá spegla þau þessa menningu. Við verðum að spyrja okkur, hvaða skilaboð erum við að senda? Leggjum við áherslu á að segja við börnum okkar að það sé í lagi að mistakast? Að próf séu bara æfing eða gefum við þeim til kynna að árangur sé allt sem telji? Rannsóknir í þroskasálfræði sýna að börn ljúga eða svindla af ýmsum ástæðum. Þau gera það til að forðast refsingar, ná umbun eða viðurkenningu, vegna hópþrýstings eða einfaldlega vegna þess að þau hafa lært að slík hegðun borgar sig. Kang Lee, prófessor í sálfræði við Háskólann í Torontó, Kanada bendir á í yfirlitsgrein sinni, að börn þróa með aldrinum bæði hugræna færni og félagslegan skilning, sem gerir þeim kleift að nota lygi sem meðvitað tæki til að verja sjálfsmynd sína og aðlagast kröfum umhverfisins (Lee, 2013). Þegar við skoðum þessar ástæður nánar, sjáum við að flestar þeirra tengjast menningu sem leggur of mikla áherslu á árangur, refsingu og samanburð og of litlu á að kenna heiðarleika, seiglu og sjálfstraust. Ef við viljum minnka líkur á því að barn upplifi að óheiðaleiki borgi sig og auka vilja þeirra til að axla ábyrgð, þurfum við að skapa annað andrúmsloft í skólum. Það er ekki nóg að setja strangari reglur eða beita harðari refsingu. Við þurfum að vinna með undirliggjandi ástæður. Börn þurfa að vita að þau geti sagt satt, jafnvel þótt mistök hafi orðið, án þess að það kosti virðingu þeirra. Við verðum að endurskilgreina árangur svo að tölur og próf ráði ekki ferðinni. Við verðum að gefa seiglu, forvitni og samvinnu jafn mikla athygli. Við þurfum að kenna heiðarleika sem gildi og leyfa mistökum að vera hluti af náminu. Ef próf eru sett fram sem tækifæri til að læra, en ekki aðeins sem mælikvarði á getu, minnkar þrýstingurinn. Þegar barn í grunnskóla svindlar á prófi og vill ekki viðurkenna það er það ekki aðeins persónulegt vandamál barnsins. Það er merki um samfélag sem setur of mikla áherslu á árangur og of lítið á traust og heiðarleika. Við þurfum að endurskoða kröfurnar sem við setjum á börnin okkar. Ef við viljum ala upp börn sem læra af mistökum, sem treysta sjálfum sér og öðrum, þá verðum við að skapa menningu þar sem þau mega vera mannleg. Þar sem þau mega mistakast og þar sem þau læra að heiðarleiki skilar meira en nokkur einkunn getur gert. Höfundur er mannvinur og kennari. Heimild: Lee, K. (2013). Little liars: Development of verbal deception in children. Child Development Perspectives, 7(2), 91–96. https://doi.org/10.1111/cdep.12023 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Árni Reynisson Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira