Íslendingar í Evrópudeild: Óðinn raðaði inn mörkum í Sviss Sindri Sverrisson skrifar 14. október 2025 18:41 Óðinn Þór Ríkharðsson hefur síðustu ár verið algjör lykilmaður hjá Kadetten Schaffhausen. EPA/Johan Nilsson Óðinn Þór Ríkharðsson fór á kostum fyrir Kadetten Schaffhausen þegar liðið vann 30-22 sigur á spænska liðinu Ademar Leon, í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta. Fleiri Íslendingar voru á ferðinni í Evrópudeildinni í dag.
Óðinn varð langmarkahæstur hjá Kadetten í dag með níu mörk úr tíu skotum, og keppnin byrjar því vel hjá honum og svissnesku meisturunum sem eru einnig í riðli með Nexe frá Króatíu og Partizan frá Serbíu. Arnar Freyr Arnarsson skoraði þrjú marka Melsungen sem vann tveggja marka sigur gegn Benfica, 28-26. Arnar nýtti öll skotin sín og skoraði þrjú af fyrstu níu mörkum Melsungen sem komst þá í 9-5. Stiven Valencia skoraði einnig úr öllum þremur skotum sínum fyrir Benfica sem tókst hins vegar aldrei að jafna metin eftir þetta. Reynir Þór Stefánsson var ekki með Melsungen. Arnór Viðarsson skoraði þrjú marka sænska liðsins Karlskrona sem tapaði gegn FTC í Ungverjalandi, 31-29. Ólafur Guðmundsson var hins vegar ekki með. Birgir Steinn Jónsson og félagar í sænska liðinu Sävehof gerðu afar svekkjandi 30-30 jafntefli við Tatran Presov í Slóvakíu. Heimamenn voru reyndar yfir stærstan hluta leiksins en Sävehof komst í 30-28 þegar skammt var eftir. Jöfnunarmarkið kom þegar aðeins um fimm sekúndur voru til leiksloka. Danska liðið Fredericia, sem rak Guðmund Guðmundsson á dögunum, tapaði á heimavelli gegn Hannover Burgdorf, 29-31. Í kvöld mætast Fram og Porto í keppninni og er sá leikur í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira