Gæti átt yfir höfði sér þrjátíu ára fangelsi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2025 13:01 Antonio Brown á körfuboltaleik með Los Angeles Clippers en hann gæti nú verið á leið í fangelsi. Getty/Kevin C. Cox Antonio Brown, fyrrverandi stjörnuútherji í NFL-deildinni, gæti átt yfir höfði sér allt að þrjátíu ára fangelsi ef hann verður sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með skotvopni en þetta kom fram hjá saksóknara í málinu.
Brown fylgdist með í gegnum sjónvarp í héraðsdómi Miami-Dade þar sem lögmaður hans, Mark Eiglarsh, ítrekaði að Brown hefði þegar lýst yfir sakleysi sínu. Honum var sleppt úr fangelsi í síðustu viku gegn 25 þúsund dala tryggingu og gert að bera GPS-ökklaband. Antonio Brown could face up to 30 years in prison if convicted of attempted murder because a firearm was allegedly used. Brown is accused of grabbing a handgun from security after a boxing match on May 16 & firing two shots at a man he had gotten into a fistfight with earlier. pic.twitter.com/FdYMq6nCYI— Football Forever (@fballforeverhq) November 17, 2025 Ákæra fyrir tilraun til manndráps í Flórída getur í mörgum tilfellum varðað allt að fimmtán ára fangelsisdómi. Aðstoðarríkissaksóknarinn Stephanie Cruz sagði að þar sem Brown hafi að sögn notað byssu gæti hann átt yfir höfði sér tvöfalt lengri fangelsisvist vegna refsiþyngingar fyrir notkun skotvopns. Lögin fela einnig í sér mögulegan tuttugu ára lágmarksdóm við sakfellingu. Hinn 37 ára gamli Brown sagði ekkert meðan á réttarhaldinu stóð. Engin dagsetning hefur verið ákveðin fyrir réttarhöldin. Brown er sakaður um að hafa gripið skammbyssu af öryggisverði eftir hnefaleikakeppni fræga fólksins í Miami þann 16. maí og skotið tveimur skotum að manni sem hann hafði lent í slagsmálum við fyrr um daginn. Zul-Qarnain Kwame Nantambu sagði rannsakendum að önnur kúlan hefði snert háls hans. Lögmaður Brown sagði í fyrra réttarhaldi að rangt væri farið með og að Brown hefði í raun notað sitt eigið skotvopn og skotunum hefði ekki verið beint að neinum. Brown hefur sagt á samfélagsmiðlum að hann hafi verið að verja sig gegn árás og að aðrir hafi reynt að stela skartgripum af honum. Brown lék í tólf ár í NFL-deildinni og var þá einn allra besti útherji deildarinnar. Hann lék síðast með Tampa Bay árið 2021 þar sem hann vann Super Bowl með leikstjórnandanum Tom Brady. Hann var stærstan hluta ferils síns hjá Pittsburgh. Hann tortímdi ferli sínum í lokin sem endaði með að hann gekk af velli í miðjum leik. Eftir það vildi enginn semja við hann. Brown var framseldur í síðustu viku frá Dúbaí eftir að handtökuskipun vegna ákæru um tilraun til manndráps var gefin út í júní Prosecutor: Antonio Brown could face 30 years in prison if guilty of attempted murder with gun https://t.co/5aQMtmkLS1— CTV News (@CTVNews) November 17, 2025
NFL Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Fleiri fréttir Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjá meira