Fagna nýjum samningi við Díönu rétt fyrir HM Sindri Sverrisson skrifar 24. nóvember 2025 23:32 Díana Dögg Magnúsdóttir hefur unnið sér inn stórt hlutverk hjá Blomberg-Lippe. hsg-blomberg-lippe.de Díana Dögg Magnúsdóttir, sem á miðvikudaginn verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu í fyrsta leik á HM í handbolta, hefur skrifað undir nýjan samning við eitt besta lið þýska handboltans, Blomberg-Lippe.
Á heimasíðu Blomberg-Lippe segir að Díana sé orðin, á aðeins sínu öðru tímabili með toppliði þýsku deildarinnar, orðin algjör lykilmaður. Hún kom til félagsins frá Sachsen Zwickau þar sem hún var í fjögur ár og þekkir því orðið afar vel til í Þýskalandi, þar sem HM fer einmitt fram. Auk Díönu eru Elín Rósa Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen einnig í liði Blomberg-Lippe sem eins og fyrr segir er efst í þýsku úrvalsdeildinni. Þá vann liðið öruggan sigur á Val í einvígi um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og því afar spennandi vetur fram undan. „Ég er mjög ánægð með að spila áfram með HSG [Blomberg-Lippe]. Hérna get ég þróast og safnað reynslu með þessu góða og sterka liði,“ sagði Díana á heimasíðu félagsins. Vinnuveitendur hennar hrósa happi yfir því að Díana hafi skrifað undir nýjan samning. „Ég er mjög ánægður með að Díana, leikmaður sem sýndi okkur og liðinu á síðasta tímabili hversu mikilvæg hún er, bæði með spilamennsku sinni og persónuleika, og hversu stóran þátt hún átti í heildarárangrinum, muni halda áfram að spila fyrir HSG. Díana getur spilað bæði sem hægri skytta og leikstjórnandi og gefur þjálfarateyminu þar með fleiri taktíska möguleika“, segir Jan-Henning Himborn, framkvæmdastjóri HSG.
Þýski handboltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira