Braust inn í vínbúð og „drapst“ á klósettinu Samúel Karl Ólason skrifar 3. desember 2025 21:52 Þvottabjörninn virðist hafa gengið berserksgang í vínbúðinni. Hann braut fjölmargar flöskur og fannst svo steinsofandi inn á klósetti. Dýraskýli Hanoversýslu í Virginíu Óprúttinn, grímuklæddur innbrotsþjófur braust um helgina inn í vínbúð í Virginíu í Bandaríkjunum. Þjófurinn er sagður hafa hagað sér dýrslega í versluninni, þar sem hann braut áfengisflöskur og drakk úr þeim af svo mikilli áfergju að hann „drapst“ inni á klósetti í versluninni.
Þar kom svo lögregluþjónn að honum, liggjandi sofandi við hliðina á klósettskálinni. Segja má að innbrotsþjófurinn hafi ekki verið hefðbundinn en um er að ræða þvottabjörn sem virðist hafa komist inn í vínbúðina með því að komast inn á loft hennar þar sem hann var á ferðinni þegar ein platan gaf sig svo hann féll í gólfið. Þvottabjörninn braut fjölda áfengisflaska í verslunni og komst hann meðal annars í viskí og drakk nóg af því. Starfsmenn dýraskýlis í Ashland í Virginíu sögðu frá innbrotsþjófinum á Facebook í gær. Þar kom fram að þvottabjörninn hefði verið mjög ölvaður þegar lögregluþjón bar að garði. Sá flutti dýrið til skýlisins þar sem þvottabjörninn fékk að sofa úr sér. Honum var svo sleppt úr haldi í kjölfarið og kom þvottabjörninn ósærður frá þessu ævintýri, að þynnku undanskilinni.
Bandaríkin Erlend sakamál Dýr Grín og gaman Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Sjá meira