Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2025 09:00 Gianni Infantino, forseti FIFA, lætur Donald Trump Bandaríkjaforseta frá risamiða á HM í fótbolta næsta sumar þegar þeir kynntu mótið í Hvíta húsinu á dögunum. Getty/Carolyn Van Houten Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur lækkað verð á sumum miðum á heimsmeistaramótið í fótbolta næsta sumar en það á við fyrir tryggustu stuðningsmenn liðanna eftir hörð viðbrögð um allan heim. Sumir munu fá sæti á úrslitaleikinn á sextíu dollara í stað þess að þurfa að greiða 4.185 dollara.
Munu þessir útvöldu stuðningsmenn þar með aðeins borga 7600 krónur fyrir miða í staðinn fyrir 529 þúsund krónur. FIFA tilkynnti á þriðjudag að sextíu dollara miðar yrðu í boði á alla leiki mótsins í Norður-Ameríku og yrðu þeir afhentir knattspyrnusamböndum þeirra þjóða sem keppa. Þessi sambönd ákveða síðan hvernig miðunum verður úthlutað til tryggra stuðningsmanna sem hafa sótt fyrri leiki, bæði á heimavelli og útivelli. FIFA have announced plans to release £45 tickets for each World Cup game, including the final 🚨The tickets will be distributed by the football associations of the 48 countries taking part in the tournament 🎟️ pic.twitter.com/eZrM0ZZoLh— Sky Sports News (@SkySportsNews) December 16, 2025 Fjöldi sextíu dollara miða á hvern leik verður líklega nokkur hundruð frekar en þúsundir, í því sem FIFA kallar nú „Supporter Entry Tier“-verðflokk. FIFA tilgreindi ekki nákvæmlega hvers vegna það breytti stefnu sinni svo harkalega en sagði að lægra verð væri „hannað til að styðja enn frekar við ferðalanga sem fylgja landsliðum sínum á mótinu.“ Heimsmeistaramótið í Norður-Ameríku verður fyrsta mótið með 48 liðum, í stað 32, og er búist við að það skili FIFA að minnsta kosti tíu milljörðum dollara í tekjur eða meira en tólf hundruð milljörðum íslenskra króna. En stuðningsmenn um allan heim brugðust við með áfalli og reiði í síðustu viku þegar þeir sáu miðaáætlanir FIFA sem veittu þátttökuliðum enga miða í lægsta verðflokknum. Fifa says cheaper tickets will be available to a certain number of "loyal fans" of the countries playing at next year's World Cup 🏆🎫 This follows criticism of the ticket prices for the tournament. pic.twitter.com/baodQV1opJ— BBC Sport (@BBCSport) December 16, 2025 Lægstu verðin voru á bilinu 120 til 265 dollarar fyrir riðlakeppnisleiki sem ekki fólu í sér gestgjafaþjóðirnar Bandaríkin, Kanada og Mexíkó. Enska knattspyrnusambandið deildi verðupplýsingum með England Supporters Travel Club (ESTC), sem sýndi að ef stuðningsmaður keypti miða á alla leiki fram að úrslitaleik myndi það kosta rúmlega 7.000 dollara eða meira en 883 þúsund krónur. Gagnrýni frá stuðningsmönnum, sérstaklega í Evrópu, hafði aukist í nokkra mánuði vegna áætlana um „breytilega verðlagningu“ auk aukagjalda á endursöluvettvangi FIFA, hvort tveggja er algengt í bandarískum skemmtanaiðnaði en ekki meðal knattspyrnuaðdáenda um allan heim. Stuðningsmannasamtökin Football Supporters Europe (FSE) fögnuðu ákvörðun FIFA á þriðjudag en sögðu að „endurskoðunin gangi ekki nógu langt til að sætta“ og bentu á að verðskipulag fyrir fatlaða stuðningsmenn eða ókeypis fylgdarmiða vantaði. Í yfirlýsingu var bætt við: „Í augnablikinu lítum við á tilkynningu FIFA sem ekkert annað en friðþægingaraðgerð vegna neikvæðra viðbragða á heimsvísu.“ „Við skorum á FIFA að hefja alvöru viðræður til að finna lausn sem virðir framlag stuðningsmanna og virðingu fatlaðra stuðningsmanna.“ FIFA úthlutar átta prósentum miða til landsambanda fyrir leiki sem lið þeirra tekur þátt í til að selja tryggustu stuðningsmönnunum. Á þriðjudag sagði stjórnin að tíu prósent þeirra yrðu verðlagðir á sextíu dollara.
HM 2026 í fótbolta FIFA Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira