Pollróleg þó starfsáætlun þingsins hafi verið felld úr gildi Oddur Ævar Gunnarsson og Sunna Sæmundsdóttir skrifa 17. desember 2025 20:08 Sigríður Andersen þingflokksformaður Miðflokksins og Sigmar Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar ræddu stöðuna á þingi í kvöldfréttum Sýnar. Starfsáætlun Alþingis hefur verið felld úr gildi en síðasti þingfundur vetrarins átti samkvæmt henni að fara fram í dag. Enn hefur bandormurinn svonefndi ekki verið afgreiddur. Þingflokksformenn Viðreisnar og Miðflokksins eru pollróleg yfir stöðunni á þingi þó óljóst sé hvenær það fari í jólafrí og sögðu í kvöldfréttum Sýnar að þingstörf gengu vel.
Ekki er víst hvenær þing fer í jólafrí en undantekningalaust er það þannig að þingfundir standa lengur en starfsáætlun gerir ráð fyrir. Sigmar Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar og Sigríður Andersen þingflokksformaður Miðflokksins eru sammála um að ágætis gangur hafi verið í þingstörfum. Býst við að dagskrá klárist á morgun eða föstudag „Ef maður er búinn að læra eitthvað af því að vinna í þessu húsi þá er það nú eiginlega það að það er voða erfitt að segja til um hvenær við náum að klára. En ég myndi halda að miðað við þessa dagskrá sem er í gangi í dag og í kvöld, ef hún klárast, þá ættum við nú að geta klárað á morgun eða á föstudaginn,“ segir Sigmar. Hann segir ágætis gang hafa verið í þinginu, langar atkvæðagreiðslur og fundir en þingstörf gengið vel. Hverju verður rumpað af? „Nú erum við náttúrulega að vinna í öllum þessum fjárlagatengdu málum og öllum málum sem eru í svona daglegu tali kölluð dagsetningamál, sem eru með einhverjum dagsetningum í eða er mikilvægt að klára fyrir áramótin, það eru þau mál sem við höfum verið að vinna með bara eins og alltaf á þessum árstíma. Það er talsvert búið en það er nú eitthvað eftir ennþá.“ Jafnaðargerði stjórnarandstöðu að þakka Þingmenn stjórnarandstöðunnar nýttu lið fundarstjórnar forseta í dag til að gera athugasemdir við makrílsamning stjórnvalda. Sigríður segir að þingstörf leggist vel í hana, allt sé venju samkvæmt. „Það eru auðvitað langar atkvæðagreiðslur sem kemur engum á óvart sem hefur verið í þessu að minnsta kosti lengur en einn þingvetur. Allt eðlilegt og hefðbundið, eins atkvæðis skýringar, þannig þetta getur dregist á langinn, svo koma svona óvæntir atburðir upp eins og makrílsamningurinn, þar sem þingmenn töldu mjög mikilvægt að kalla eftir svörum og upplýsingum um þennan samning, jafnvel eftir fundum í viðeigandi nefndum og fá ráðherra til að upplýsa um þennan samning og það er alveg hefðbundið að menn noti liðinn fundarstjórn forseta til þess að gera það.“ Sigmar segir málastöðu ríkisstjórnarinnar fína. Allir muni hvernig þingstörf hafi gengið í sumar, en nú hafi stjórn og stjórnarandstöðu tekist vel til að vinna saman. „En svo kemur auðvitað alltaf einhver svona titringur þegar nálgast jól eða nálgast vor, en heilt yfir hefur mér fundist þetta ganga bara nokkuð vel. Þannig málastaðan er nokkuð ágæt. Auðvitað tefst sumt eins og gengur og auðvitað þarf að staldra lengi við í sumu eins og gengur en heilt yfir er þetta bara fínt myndi ég segja.“ Sigríður segist taka undir með Sigmari, að staðan sé ágæt á þingi. „Og það er ekki síst sveigjanleika og jafnaðargerði stjórnarandstöðunnar að þakka í þeim efnum, vegna þess að hér er auðvitað verið að afgreiða núna á síðustu dögum þingsins fyrir jól nokkur mál sem hafa komið mjög seint inn á þingið og hafa hlotið nokkra flýtimeðferð í þinginu, sem við teljum auðvitað mjög bagalegt í stjórnarandstöðunni og höldum því til haga en það er auðvitað afgreitt á ábyrgð ríkisstjórnarinnar.“
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Miðflokkurinn Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira