Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Samúel Karl Ólason skrifar 20. desember 2025 09:52 Flugmaður undirbýr A-10 herþotu fyrir flugferð á umsjónarsvæði CENTCOM. AP/Flugher Bandaríkjanna Bandaríkjamenn gerðu í gær árásir á um sjötíu skotmörk sem talin eru tengjast starfsemi Íslamska ríkisins í Sýrlandi. Markmiðið var að hefna fyrir dauða tveggja bandarískra hermanna og túlks í árás í síðustu viku.
Í tilkynningu frá forsvarsmönnum herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (CENTCOM) segir að til árásanna hafi verið notast við herþotur, þyrlur og stórskotalið og segjast þeir hafa notast liðsinnis herafla Jórdaníu til árásanna. Þá segjast þeir hafa notað rúmlega hundrað sprengjur til árásanna sem hafi beinst gegn innviðum ISIS-liða og vopnageymslum þeirra. Brad Cooper, sem stýrir CENTCOM, segir árásirnar eiga að koma í veg fyrir að ISIS-liðar geti kvatt til árása gegn Bandaríkjamönnum og í Bandaríkjunum. Haldið verði áfram að elta uppi hryðjuverkamenn sem vilji skaða Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra. CENTCOM forces launched fighter jets, attack helicopters and other assets to conduct the large-scale strike. pic.twitter.com/3szSo2u5rm— U.S. Central Command (@CENTCOM) December 19, 2025 Trump sagði frá árásunum í færslu á Truth Social í gær en þar sagði hann árásirnar njóta stuðnings nýrra stjórnvalda í Sýrlandi. Þá sagði hann að árásirnar fælu í sér skilaboð til allra hryðjuverkamanna sem ætluðu sér að gera árásir á Bandaríkjamenn eða hóta þeim. Forsetinn sagði að þeim yrði svarað með umfangsmeiri árásum en þeir hefðu nokkru sinni upplifað áður. Donald Trump og Pete Hegseth tóku á dögunum á móti líkum þriggja manna sem skotnir voru til bana í Sýrlandi.AP/Julia Demaree Nikhinson Bandarískur embættismaður sem ræddi við AP fréttaveituna segir von á frekari árásum gegn ISIS í Sýrlandi. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sló á svipaða strengi og Trump og sagði í færslu á X í gær að árásirnar mörkuðu ekki upphaf nýs stríðs, heldur væri um hefndaraðgerð að ræða. Ríkisstjórn Trumps myndi aldrei hika þegar kæmi að því að vernda Bandaríkjamenn. Earlier today, U.S. forces commenced OPERATION HAWKEYE STRIKE in Syria to eliminate ISIS fighters, infrastructure, and weapons sites in direct response to the attack on U.S. forces that occurred on December 13th in Palmyra, Syria. This is not the beginning of a war — it is a…— Secretary of War Pete Hegseth (@SecWar) December 19, 2025 Nýliði skaut á hermenn Þann 13. desember sat meintur ISIS-liði fyrir bandarískum hermönnum í herstöð í Palmyra í Sýrlandi. Árásarmaðurinn var nýliði í stjórnarher Sýrlands og skaut tvo bandaríska hermenn og túlk af írökskum uppruna til bana og særði tvo hermenn til viðbótar. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni en bandarískir embættismenn hafa bent á Íslamska ríkið og hafa ráðamenn í Sýrlandi tekið undir það. Árásarmaðurinn er ekki endilega talinn hafa verið meðlimur í ISIS, heldur hafi hann þess í stað laðast að málflutningi hryðjuverkasamtakanna. Í gegnum árin hafa fjölmargir menn gert árásir víðsvegar um heim í nafni Íslamska ríkisins, án þess þó að vera meðlimir í samtökunum. Eins og þekkt er lögðu vígamenn Íslamska ríkisins undir sig stóra hluta Íraks og Sýrlands sumarið 2014. Í september 2014 var áætlað að yfirráðasvæði ISIS væri um 210 þúsund ferkílómetrar, eða svipað stórt og Bretland. Enn átti yfirráðasvæði þeirra eftir að stækka. Bandaríkjamenn og aðrir tóku þá höndum saman til að berjast gegn ISIS og voru gerðar umfangsmiklar loftárásir gegn ISIS-liðum auk þess sem hermenn voru sendir til bæði Íraks og Sýrlands, bæði til að aðstoða heimamenn við baráttuna og til að berjast beint gegn ISIS-liðum. Árið 2019 lýstu Bandaríkjamenn því svo yfir að Kalífadæmi ISIS heyrði sögunni til. Það þýddi þó aldrei að hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við Íslamskt ríki hafi verið upprætt. Vígamenn ISIS hafa síðan þá haldið til í skuggunum og haldið árásum sínum gegn óbreyttum borgurum og hermönnum áfram í bæði Írak og Sýrlandi.
Bandaríkin Sýrland Hernaður Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira