Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Sindri Sverrisson skrifar 22. desember 2025 17:33 Glódís Perla Viggósdóttir og Hákon Arnar Haraldsson eru knattspyrnufólk ársins 2025. Samsett/Getty Landsliðsfyrirliðarnir Glódís Perla Viggósdóttir og Hákon Arnar Haraldsson urðu fyrir valinu sem knattspyrnufólk ársins 2025, hjá Knattspyrnusambandi Íslands.
Glódís, sem er þrítug og einnig fyrirliði Þýskalandsmeistara Bayern München, er nú valin fjórða árið í röð og Hákon, sem er enn aðeins 22 ára, er nú valinn í þriðja sinn. Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður Inter, varð í 2. sæti hjá konunum og Sandra María Jessen, framherji Kölnar, í 3. sæti. Hjá körlunum varð Albert Guðmundsson hjá Fiorentina í 2. sæti og Elías Rafn Ólafsson, markvörður Midtjylland, í 3. sæti. Hér að neðan má lesa rökstuðning KSÍ fyrir valinu á knattspyrnufólki ársins: Glódís Perla Viggósdóttir er Knattspyrnukona ársins í fjórða sinn og fjórða árið í röð.Líkt og áður hefur hún verið einn af lykilleikmönnum Bayern München og íslenska landsliðsins og er fyrirliði beggja liða. Glódís varð þýskur meistari með Bayern í vor sem leið og tapaði liðið aðeins einum leik í deildinni á tímabilinu. Glódís lék 18 leiki í deildinni og skoraði í þeim tvö mörk. Glódís varð einnig þýskur bikarmeistari er Bayern München vann 4-2 sigur á Werder Bremen í úrslitaleik keppninnar. Glódís lék fjóra leiki í bikarkeppninni og skoraði í þeim eitt mark. Glódís lék sex leiki í Meistaradeild UEFA, en þar datt Bayern út í 8-liða úrslitum keppninnar eftir tap gegn Lyon. Glódís lék 10 A-landsleiki á árinu og þar af alla leiki liðsins á EM 2025. Á núverandi tímabili hefur Glódís leikið níu leiki í deild, einn í þýska bikarnum og fimm í Meistaradeild UEFA. Hákon Arnar Haraldsson er Knattspyrnumaður ársins í þriðja sinn. Hákon Arnar hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár, er varafyrirliði liðsins og lék níu leiki með liðinu á árinu. Hann hefur alls leikið 28 A-landsleiki og skorað í þeim þrjú mörk. Hákon Arnar lék 25 leiki á liðinu tímabili með LOSC Lille í frönsku úrvalsdeildinni og skoraði í þeim fimm mörk. Auk þess skoraði hann tvö mörk í sex leikjum í Meistaradeild UEFA. Hákon hefur leikið frábærlega á nýju tímabili, leikið 15 leiki í deildinni og skoraði í þeim fimm mörk. Í Evrópudeildinni hefur hann leikið sex leiki og skorað eitt mark.
KSÍ Fótbolti Landslið karla í fótbolta Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Haaland sló met Agüero Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Sjá meira