Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Kjartan Kjartansson skrifar 9. janúar 2026 13:25 Franskir bændur hafa mótmælt fríverslunarsamningi við Mercosur undanfarna daga. Þeir óttast samkeppni við suðuramerískar landbúnaðarafurðir. Vísir/EPA Aukinn meirihluti aðildarríkja Evrópusambandsins samþykkti fríverslunarsamning við fimm suðuramerísk ríki sem mynda fríverslunarbandalagið Mercosur. Verði samningurinn að veruleika verður til stærsta fríverslunarsvæði í heiminum.
Samningurinn hlaut bráðabirgðasamþykki þrátt fyrir að Frakkar, Pólverjar, Austurríkismenn, Írar og Ungverjar hefðu lýst andstöðu sinni. Belgar sátu hjá. Aðildarríkin hafa þar til síðdegis til þess að mótmæla samþykktinni. Evrópusambandið og Mercusor hafa átt í viðræðum um saminginn í aldarfjórðung. Hann virðist loks ætla að líta dagsins ljós eftir að ESB tók til hliðar milljarðra evra til þess að aðstoða evrópska bændur sem óttast að missa spón úr aski sínum vegna innflutning á landbúnaðarvörum frá Suður-Ameríku. Aðildarríkin samþykktu einnig í dag ákvæði um verndaraðgerðir sem gefa ESB möguleika á að draga úr innflutningi frá Mercosur-ríkjunum ef mikil aukning verður á honum, að sögn dagblaðsins Politico. Þær eru í anda verndaraðgerða sem voru settar á íslenskt járnblendi í fyrra. Fríverslunarsvæði ESB og Mercosur yrði það stærsta í heimi en um 700 milljónir manns búa á því. Mercosur samanstendur af Brasilíu, Argentínu, Paragvæ, Úrúgvæ og Bólivíu. Venesúela var hluti af bandalaginu en var rekið úr því árið 2016. EFTA-ríkin, þar á meðal Ísland, skrifuðu undir fríverslunarsamning við Mercosur-ríkin í júlí. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, er sögð ætla að fljúga til Paragvæ til að skrifa undir fríverslunarsamninginn í næstu viku.
Evrópusambandið Brasilía Argentína Paragvæ Úrúgvæ Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira