„Þarna var ákveðið að verja ekki börnin“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 15. janúar 2026 13:26 Talskona Stígamóta segir það afar varhugaverða þróun ef réttarkerfið ætlar að taka mið af óskum þolenda um að biðjast vægðar fyrir hönd gerenda þegar dómar eru kveðnir upp fyrir ofbeldisbrot. Það myndi útsetja þolendur nú og í framtíðinni fyrir hótunum og mögulega frekara ofbeldi gerenda. Samsett Það er mat talskonu Stígamóta að dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hafi með dómi sínum ákveðið að leggja hagsmuni barnanna til hliðar þegar hann ákvað að skilorðsbinda fimm ára fangelsisdóm sem kveðinn var upp yfir manni á fertugsaldri vegna alvarlegra og ítrekaðra ofbeldisbrota hans gegn sambýliskonu.
Að minnsta kosti einu sinni fór umrætt ofbeldi fram fyrir framan barn. Þessi sami maður er nú ákærður fyrir að hafa beitt dóttur sambýliskonu sinnar ítrekuðu kynferðislegu ofbeldi sem hann á að hafa framið frá 2023 til 2025 þegar stúlkan var sex til níu ára á heimili þeirra í Hafnarfirði. Fáheyrt er að svo þungur dómur (í árum talið) fyrir alvarleg ofbeldisbrot sé skilorðsbundinn en í dómnum var sagt að ásetningur ákærða til brotanna hafi verið sterkur og einbeittur. Ein af ástæðunum sem taldar eru upp í dómnum fyrir því að ákveðið var að skilorðsbinda dóm mannsins var sú að umrædd sambýliskona hafi beðist vægðar fyrir hann og sagt að það myndi raska núverandi högum hennar og barna hennar ef manninum yrði gerð óskilorðsbundin refsing. Þá hafi maðurinn játað brot sín skýlaust og væri fullur eftirsjár. „Þarna er maður sem hefur sýnt af sér grófa ofbeldishegðun, að hluta til fyrir framan börn. Þarna hefur verið ákveðið að setja hagsmuni barnanna til hliðar. Það hefur verið ákveðið að verja ekki börnin af því að – eins og ég les þetta – þá hafa ofbeldisbrot verið framin fyrir framan börn. Það er samkvæmt skilgreiningu ofbeldi gegn börnum en samt er ákveðið að liðka fyrir því að maðurinn fari inn á heimilið aftur.“ Myndi útsetja þolendur fyrir enn frekara ofbeldi og hótunum Þetta segir Drífa Snædal talskona Stígamóta sem var innt eftir viðbrögðum við málinu. „Það sem er svakalegt í þessu máli, eftir því sem maður les í fjölmiðlum, er að þarna hefur brotaþoli óskað eftir því að gerandi afpláni ekki. Ef það er réttarfarið hjá okkur að brotaþolar geti óskað eftir því að þeir sem brjóta á þeim þurfi ekki að afplána þá erum við að útsetja brotaþola þessa lands fyrir hótunum, frekara ofbeldi, mútum og fleiru.“ Starfsfólk Stígamóta þekkir það of vel að ein af afleiðingum ofbeldisbrota á þolendur er að taka á sig sök og jafnvel gera lítið úr ofbeldinu. Framdi brot gegn móður barnsins fyrir framan barnið Í dómnum sem hann hlaut fyrir ofbeldi gegn sambýliskonunni kemur fram að ofbeldið hefði verið framið í nærveru barns sem var yngra en 15, að minnsta kosti í eitt skiptið. „Það að hann hafi ekki afplánað og bara verið sendur beint inn á heimilið aftur sýnir bara mjög mikla vanþekkingu í kerfinu; vanþekkingu á því að brotaþolar geta verið fjárhagslega og tilfinningalega háðir þeim sem brjóta gegn þeim. Það getur verið hluti af þessu. Það er bara mjög margt í þessu máli sem hringir öllum bjöllum. Maður hefði haldið að kerfið væri komið lengra í vitneskju um afleiðingar ofbeldisbrota og stöðu brotaþola í samfélaginu en framkvæmd dómsins gefur til kynna.“ Ofbeldi karla gegn konum aldrei einkamál Drífa segir að veruleiki ofbeldissambanda sé oft sá að þolandi er háður geranda fjárhagslega. „Við búum náttúrulega við þannig samfélag að það þarf yfirleitt tvær innkomur til að sjá fyrir fjölskyldu og það þarf að huga sérstaklega að fjárhagslegum stuðningi við konur sem eru að reyna að brjótast út úr ofbeldissamböndum. Heilt yfir má segja að við séum búin að lyfta ofbeldi innan veggja heimilisins yfir í það að vera samfélagslegt vandamál og við eigum að tækla þau þannig. Ofbeldi karla gegn konum er ekki einkamál.“
Hafnarfjörður Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Lögreglumál Tengdar fréttir Játar að hafa brotið á stúlku í Hafnarfirði Karmaður sem hefur verið ákærður fyrir að nauðga stúlku, sem er yngri en fjórtán ára, í Hafnarfirði í október síðastliðnum hefur játað brot sín að mestu leyti. Maðurinn tengist stúlkunni fjölskylduböndum. Hann sætir nú gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna. 12. janúar 2026 11:42 Slapp óvænt við fangelsi og braut ítrekað á stjúpdóttur sinni Karlmaður hefur verið ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var sex til níu ára gömul. Sami maður hlaut fyrir tveimur árum þungan dóm fyrir kynferðisbrot gegn móður stúlkunar en sat aldrei inni, að sérstakri ósk móðurinnar. 14. janúar 2026 23:03 Mest lesið Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Erlent Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Erlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Innlent Fleiri fréttir Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Rafbyssum aldrei beitt oftar Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna „Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Kærður fyrir að löðrunga hundinn sinn Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Botnlaus gróðafýsn, viðsnúningur í nauðgunarmáli og óánægja vegna Baldurs „Erum við að fara að deyja?“ Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Sjá meira
Játar að hafa brotið á stúlku í Hafnarfirði Karmaður sem hefur verið ákærður fyrir að nauðga stúlku, sem er yngri en fjórtán ára, í Hafnarfirði í október síðastliðnum hefur játað brot sín að mestu leyti. Maðurinn tengist stúlkunni fjölskylduböndum. Hann sætir nú gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna. 12. janúar 2026 11:42
Slapp óvænt við fangelsi og braut ítrekað á stjúpdóttur sinni Karlmaður hefur verið ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var sex til níu ára gömul. Sami maður hlaut fyrir tveimur árum þungan dóm fyrir kynferðisbrot gegn móður stúlkunar en sat aldrei inni, að sérstakri ósk móðurinnar. 14. janúar 2026 23:03