Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. janúar 2026 09:01 Roy Keane og Michael Carrick virðast ekki vera miklir vinir. Michael Carrick segir háværa umræðu í kringum Manchester United ekki trufla sig og ummæli Roy Keane bíta ekkert á hann.
Carrick er nýtekinn við starfi aðalþjálfara hjá Manchester United og Roy Keane er sparkspekingur hjá Sky Sports sem leggur mikla áherslu á Rauðu Djöflana. Þeir voru báðir miðjumenn hjá Manchester United og eiga sér langa sögu. Þegar Carrick kom fyrst til Manchester United frá Tottenham tók hann sér treyju númer 16, sem Roy Keane klæddist áður. Carrick átti eftir að vinna ensku úrvalsdeildina fimm sinnum og hampa Meistaradeildartitli, en hann sá liðið líka á niðurleið eftir að Sir Alex Ferguson hætti störfum. Eftir slæmt tap í Evrópudeildinni árið 2014 fór Carrick í viðtal sem Roy Keane var mjög ósáttur með og gagnrýndi Carrick mikið fyrir. Svo slæm var gagnrýnin að eiginkona Carrick, Lisa, fór á Twitter til að verja sinn mann, sem Roy Keane rifjaði upp á dögunum þegar hann kallaði hana „kjaftfora“ í hlaðvarpsviðtali við Stick To Football. Roy Keane sagði ýmislegt annað í þessu hlaðvarpsviðtali og gagnrýndi Carrick meðal annars fyrir að ráða Jonny Evans inn í þjálfarateymi sitt. Keane verður svo með vini sínum og fyrrum liðsfélaga, Gary Neville, í settinu hjá Sky Sports í hádeginu í dag þegar Manchester United mætir Manchester City. „Þeir eru að setja pressu á mig en ég finn ekki fyrir henni“ sagði Carrick. „Fullt af fólki hefur skoðanir, sumir eru jákvæðir en aðrir ekki. Það skiptir mig engu máli. Ég er að einbeita mér að allt öðrum hlutum“ bætti þjálfarinn við. Leikur Manchester United og Manchester City verður í beinni útsendingu á Sýn Sport klukkan 12:00.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Sjá meira