Bein útsending: Flytja fimm þúsund tonna eldflaug á skotpall fyrir tunglskot Samúel Karl Ólason skrifar 17. janúar 2026 11:45 Space Launch System eldflaugin og Orion geimfarið í Flórída. Stæðan, sem er rúmlega fimm þúsund tonn að þyngd, hefur ferðalagið á skotpall í dag. AP/Keegan Barber, NASA Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) ætla í dag að flytja stærðarinnar eldflaugasamstæðu á skotpall í Flórída. Nota á Space Launch System eldflaug til að skjóta fjórum geimförum um borð í Orion geimfari af stað til tunglsins snemma í næsta mánuði.
Þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 1972 sem menn verða sendir til tunglsins en geimferiðin kallast Artemis 2 og er liður í Artemisáætluninni. Ekki stendur til að lenda geimförum á tunglinu að þessu sinni heldur munu geimfararnir verja um tíu dögum í að ferðast til tunglsins, fara á braut um tunglið og snúa aftur heim til jarðar. Um er að ræða undirbúning fyrir Artemis 3 en þá stendur til að lenda geimförum á yfirborði tunglsins. Vonast er til að það geimskot eigi sér stað fyrir árið 2028. Stæðan er, þegar þetta er skrifað, í sérstakri byggingu í Kennedy-geimmiðstöðinni í Flórída, þar sem eldflaugastæður eru settar saman. Hún verður svo flutt á skotpall 39B í dag. Taka mun rúmlega tólf klukkustundir að flytja þessi rúmu fimm þúsund tonn á skotpall, gangi allt eftir. Til stendur að skjóta geimförunum að stað til tunglsins þann 6. febrúar. Hægt er að fylgjast með hasarnum í spilaranum hér að neðan. Útsendingin hefst klukkan tólf. Artemis-áætlunin snýst í stuttu máli um að senda geimfara aftur til tunglsins og koma þar upp varanlegri viðveru. Nota á tunglið sem stökkpall lengra út í sólkerfið. Í grískri goðafræði er Artemis systir Apollos. Um mitt ár 2027 á, samkvæmt áætlunum NASA, að lenda geimförum á tunglinu í fyrsta sinn frá desember 1972, þegar geimfararnir Gene Cernan og Harrison Schmitt urðu ellefti og tólfti maðurinn til að ganga á yfirborði tunglsins.
Bandaríkin Tunglið Artemis-áætlunin Geimurinn Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira