Er tæknin til að skipta yfir í hreina orku til staðar? Gunnar Einarsson skrifar 18. janúar 2026 21:02 Eyþór Eðvarðsson skrifaði grein á Vísi 31-12-25. Í greininni nefnir hann 15 atriði, sem haldið er fram um loftlagsbreytingar, sem hann telur rangfærslur. Hjá honum kemur fram eitt og annað sem verður að teljast vafasamt. Ég ætla að byrja á tíunda lið. Þar stendur meðal annars: „flestar nauðsynlegar lausnir eru þegar til. Seinkun eykur áhættu----„ Vissulega hefur tækninni til að minnka notkun á jarðefna eldsneyti, fleytt fram. Margar góðar lausnir eru til, en það gæti orðið erfitt að koma þeim í notkun í þeim skala og tíma, sem áætlanir gera ráð fyrir. Dr. Simon Michaux er ástralskur námufræðingur, sem vann við námuvinnslu í Ástralíu í mörg ár, en er núna prófessor í Finnlandi. Hann er mjög hlynntur því að dregið verði úr notkun á jarðefnaeldsneyti, en hann segir að það verði að hugsa dæmið áður en lagt er af stað. Hann lagðist yfir áætlanirnar og tímaplönin um hvernig gert væri ráð fyrir að draga úr jafnvel verða CO2 hlutlaus fyrir miðja öldina. Hann reiknaði hvað þyrfti af málmum og orku til að af þessu geti orðið, á reiknuðum tíma. Hann sá fljótlega að miðað við núverandi tækni, þyrfti gríðarlegt magn af allskonar málmum. Við skulum aðeins taka einn, kopar, sem mun þurfa mjög víða og í miklu magni, við orkuskiptin. Hann bendir á, að á undanförnum áratugum, hefur vegna skorts á góðu hráefni, verið farið að vinna kopar úr jarðefnum, sem innihalda aðeins brot af þeirri koparprósentu, sem áður var notuð. Það þarf miklu meiri orku í dag sem gerir framleiðsluna miklu dýrari. Hann telur að það sé útilokað að núverandi námur muni geta framleitt allt þetta magn sem þarf. Ef það á að opna nýjar námur þá getur það tekið 10-20 ár áður en þær fara að skila kopar. Orkan sem þyrfti til að opna hverja námu og smíða hreinsunarstöðvarnar yrði gríðarleg og það mun þurfa að brenna mjög miklu af jarðefnaeldsneyti til að koma námunum af stað og reka þær. Vindmyllur myndu aldrei duga. Það sem þó er verra, er að það eru vandfundnir staðir þar sem hægt er að opna nýjar námur. Koparinn er bara einn af mörgum málmum sem þyrfti. Útreikningar hans vöktu athygli og hann var fengin til að halda fyrirlestra fyrir stjórnmálamenn og embættismenn hér og þar, meðal annars í Brussel. Þar fékk hann gott hljóð til að lesa upp og sýna glærur. Á eftir var lítið um spurningar. Menn setti hljóða. Það var greinilegt að elítan sem hafði gert þessar áætlanir hafði lítið hugað að hvað þyrfti til. Þeir virtust ekki hafa jarðsamband, lifðu í draumaheimi og reistu skýjaborgir. Hann hélt helst að flestir, sem á hlýddu, hafi farið aftur á skrifstofur sínar og reynt að gleyma þessu. Við eigum að hugsa sjálfstætt og ekki láta glepjast með í illa hugsaðar áætlanir. Vísindin eru að vinna hörðum höndum, víða um heim við að finna hagstæðar lausnir. Það er margt að gerast og ef við trúum á vísindin, eru góðar líkur á að við getum smátt og smátt minnkað notkun á jarðefna eldsneyti. Áætlanir sem gera ráð fyrir að heimurinn verði nærri því að vera laus við losun CO2 fyrir 2050 munu ekki ganga eftir, meðal annars verða ekki til aðföng sem þyrfti. Höfundur er fyrrverandi bóndi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar