Hvernig samfélag má bjóða þér? Ingileif Friðriksdóttir skrifar 17. maí 2026 21:36 Fyrr í mánuðinum bárust fréttir af því að foreldrar barns í Vesturbæjarskóla hefðu fjarlægt barnið úr skólanum vegna hinseginfræðslu. Að kynnast mismunandi fjölskylduformum og upplifunum fólks er víst of mikil „innræting” að mati sumra. Nokkrum dögum síðar fengum við sem erum foreldrar barna í Vesturbænum tölvupóst um að fjölbreytileikavika yrði haldin í frístundaheimilum hverfisins, sem næði hápunkti með regnbogahlaupi síðastliðinn miðvikudag. Ég tók þátt í deginum með börnunum mínum og nokkur hundruð öðrum skælbrosandi og hamingjusömum börnum sem hlupu regnbogalituð yfir Ægisíðuna. Gleðin var allsráðandi og skilaboðin voru skýr: við stöndum með hinseginleikanum. Börnin mín eiga tvær mömmur og fyrir þau skiptir máli að sjá regnbogafánanum flaggað. Að finna að þeirra fjölskylda er ekki öðruvísi en aðrar fjölskyldur. Þrátt fyrir að ýmsir vilji halda því fram að fáninn sé einhvers konar pólitískt trúartákn sem fái börn til að efast um kynhneigð sína eða kynvitund þá er það sannarlega ekki svo. Fyrir börn sem eru ekki hinsegin eða tilheyra ekki regnbogafjölskyldum er regnbogalitaður fáni ekki hættulegur. En fyrir börnin mín er orðræða þeirra sem vilja útiloka hann hættuleg. Hún elur á ótta í garð fólks í okkar samfélagi, fjölskyldna eins og okkar, sem hefur það sér eitt til sakar unnið að vera það sjálft. Í dag, 17. maí, er alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks. Í mínum huga hefur þörfin á því að tala hátt og skýrt með mannréttindum aldrei verið meiri. Birtingarmyndirnar blasa við okkur hvert sem litið er, og nú ekki síst í pólitíkinni. Þar hefur einn flokkur farið fram með afgerandi hætti allt frá stofnun. Þingmenn Miðflokksins kusu gegn lögum um kynrænt sjálfræði. Forysta flokksins hefur talað opinberlega gegn Samtökunum ’78 og tekið upp hanskann fyrir fólki sem hefur verið kært fyrir hatursorðræðu í garð hinsegin fólks. Varaformaður flokksins hefur ítrekað kastað fram „vangaveltum“ um hinsegin málefni sem skapa jarðveg fyrir grófari orðræðu yfirlýstra Miðflokksmanna og færa mörkin sífellt lengra. Vangaveltur kjörinna fulltrúa eru nefnilega miklu meira en bara vangaveltur. Þær eru rifa á hurð sem hleypir flóðbylgju haturs í gegnum dyrnar. Það þarf ekki annað en að skoða athugasemdir á samfélagsmiðlum til að það blasi við. Ég fékk til að mynda að heyra fyrr í vikunni að það ætti að „myrða alla þessa kynvillinga” undir myndbandi sem ég deildi frá fyrrnefndu regnbogahlaupi. Eftir sveitarstjórnarkosningarnar í gær horfum við upp á tvo valkosti við myndun meirihluta í borginni. Annars vegar hefur Sjálfstæðisflokkur val um að mynda frjálslyndan meirihluta á miðjunni með Viðreisn og Framsóknarflokki. Hins vegar um að mynda íhaldssaman afturhaldsmeirihluta með Miðflokki. Í mínum huga á valið að vera skýrt. Það er nefnilega ábyrgðarmál að leiða flokk til valda sem elur á andúð í garð hópa samfélagsins. Og snýst ekki aðeins um hvaða pólitísku mál þau sem hafa pálmann í hendi eftir kosningarnar vilja ná fram. Heldur um það í hvers konar samfélagi börnin okkar alast upp í. Höfundur er stolt hinsegin mamma. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hinsegin Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun