Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Árni Sæberg skrifar 20. janúar 2026 13:30 Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, kynnti greininguna á Útboðsþingi í dag. Vísir/Bjarni Áætluð heildarfjárhæð í fyrirhuguðum verklegum útboðum þeirra ellefu opinberu verkkaupa sem taka þátt í Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins, Samtaka innviðaverktaka og Mannvirkis – félags verktaka árið 2026 nemur 221 milljarði króna. Þetta er 53 prósenta, eða 76 milljarða króna, aukning frá þeim útboðum sem raungerðust árið 2025 en fjárhæð þeirra nam 145 milljörðum króna. Áætlað var að fjárhæð útboða síðasta árs myndi nema 264 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í greiningu SI, sem kynnt var á Útboðsþinginu, sem fer fram í dag á milli klukkan 13 og 16 í Háteig á Grand Hótel Reykjavík, þar sem fulltrúar opinberra aðila kynna fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á árinu. Útboð Landsvirkjunar umfangsmest Í greiningunni segir að aukning milli ára skýrist nær alfarið af auknum fyrirhuguðum útboðum Landsvirkjunar, Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna og Nýs Landspítala. Umfangsmest séu fyrirhuguð útboð Landsvirkjunar, sem séu áætluð sjötíu milljarðar króna á árinu, sem nemi tæplega þriðjungi af öllum fyrirhuguðum útboðum þeirra sem taka þátt í Útboðsþingi SI í ár. „Aðrir sem boða umfangsmikil útboð árinu eru NLSH með 41 milljarð króna og FSRE með 35,7 milljarða króna. Samanlagt eru þessir þrír opinberu aðilar með boðuð verkútboð fyrir 146,7 milljarða króna árið 2026 eða um 66 prósent af fyrirhuguðum útboðum ársins. Aðrir þátttakendur þingsins fyrirhuga að bjóða út verk á árinu fyrir minna en 15 milljarða króna hver.“ 119 milljarða áform runnu út í sandinn Þó segir að á Útboðsþingi 2025 hafi verið kynnt áform tíu opinberra aðila um fyrirhuguð útboð fyrir 264,2 milljarða króna á því ári, en að árinu loknu hefðu aðeins útboð fyrir 145 milljarða króna raungerst. Útboð síðasta árs hafi því verið um 119 milljörðum minni en boðað var. Mestur munur hafi verið á fyrirhuguðum útboðum og raunútboðum hjá Landsvirkjun eða 68 milljarðar króna. Sá munur skýri um 57 prósent af fjárhæð þeirra fyrirhuguðu útboða sem ekki raungerðust á árinu. „Rétt er að árétta að þær áætlanir um útboð sem kynntar eru á Útboðsþingi SI eru ekki fastar í hendi og ber því að taka þeim með fyrirvara. Þá er einnig rétt að taka fram að verkefni sem fara í útboð á árinu geta komið til framkvæmda á næstu árum.“ Opinber fjárfesting fjórðungur veltu Þá segir að áætlað sé að opinberir aðilar fjárfesti fyrir 226,2 milljarða króna á þessu ári, sem sé umtalsvert meira en á síðasta ári eða um 59 milljörðum meira. Líkt og með fyrirhuguð útboð þurfi að hafa í huga að ekki verður úr öllum fjárfestingum sem fyrirhugaðar eru á árinu. Þannig hafi sömu aðilar, samkvæmt Útboðsþingi 2025, áætlað að fjárfesta fyrir um 180,3 milljarða króna, en ný gögn sýni að fjárfesting þess árs hafi í raun numið 167,4 milljörðum króna, sem sé um sjö prósentum undir áætlunum. „Fjárfestingar þeirra opinberu aðila sem þátt taka í útboðsþingi eru umfangsmikill hluti af starfsemi byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar. Heildarveltan í greininni er áætluð 679 milljarðar króna á síðasta ári og því voru þessar framkvæmdir 25 prósent veltunnar. Samdráttur hefur mælst í heildarveltu greinarinnar undanfarið og því er sá vöxtur sem nú sést bæði í fjárfestingum og útboðum að skapa kærkomið mótvægi við samdrátt sem greina má í öðrum þáttum starfsemi greinarinnar og þá sérstaklega íbúðabyggingum. Einnig er þessi aukning jákvæð í ljósi þess að innviðaskuldin er mikil og því mikil þörf fyrir aukna fjárfestingu á þessu sviði.“ Greiningu SI má lesa í heild sinni í tengdum skjölum hér að neðan.
Rekstur hins opinbera Byggingariðnaður Efnahagsmál Mest lesið Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Mark Zuckerberg kaupir lóðir fyrir yfir 30 milljónir dollara Viðskipti erlent Skiptum lokið í 60 milljarða gjaldþroti Nordic Partners Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent