Handbolti

Ein­kunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Of margir undir pari

Íþróttadeild Sýnar skrifar
Íslensku leikmennirnir voru niðurlútur eftir leikinn gegn Króatíu.
Íslensku leikmennirnir voru niðurlútur eftir leikinn gegn Króatíu. vísir/vilhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði sínum fyrsta leik á Evrópumótinu þegar það laut í lægra haldi fyrir Króatíu, 29-30, í milliriðli II í Malmö. Slök vörn í fyrri hálfleik og slæm vítanýting varð Íslandi að falli í dag.

Annað stórmótið í röð mætti Ísland Króatíu eftir að hafa unnið alla leiki sína fram að því og aftur gerðu króatísku strákarnir hans Dags Sigurðssonar íslenska liðinu grikk.

Eins og í leiknum í Zagreb fyrir ári skutu Króatar okkar menn í kaf í fyrri hálfleik. Króatísku skytturnar skoruðu fjórtán mörk úr sautján skotum í fyrri hálfleik og Króatía leiddi að honum loknum, 15-19. Ísland minnkaði muninn í 15-16 en Króatía skoraði þrjú síðustu mörk fyrri hálfleiks.

Allt annað var að sjá til íslensku varnarinnar í seinni hálfleik en markvarslan fylgdi ekki með. Viktor Gísli Hallgrímsson átti stórleik gegn Ungverjalandi en var ólíkur sjálfur sér í dag varði aðeins tólf skot (34 prósent). Björgvin Páll Gústavsson varði ekkert af þeim sjö skotum sem hann fékk á sig.

Íslendingar sóttu hart að Króötum í seinni hálfleik og náðu nokkrum sinnum að minnka muninn í eitt mark. Króatía skoraði bara ellefu mörk í seinni hálfleik en Ísland þurfti að hafa mjög mikið fyrir mörkunum sínum.

Annan leikinn í röð fékk Ísland engin mörk utan af velli og ekki hjálpaði að fjögur vítaköst fóru í súginn. Ómar Ingi Magnússon klikkaði á víti í stöðunni 26-28 þegar þrjár mínútur voru eftir og Króatía komst í kjölfarið þremur mörkum yfir, 26-29. Strákarnir hans Dags unnu að lokum eins marks sigur, 29-30, og fengu þar með sín fyrstu stig í milliriðlinum.

Óðinn Þór Ríkharðsson átti frábæran leik í íslenska liðinu og skoraði átta mörk úr jafn mörgum skotum. Ómar skoraði einnig átta mörk. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði ekki mark en átti slatta af stoðsendingum og fiskaði sex víti.

Næsti leikur Íslands er gegn Svíþjóð á sunnudaginn.

Einkunnir Íslands gegn Króatíu: 

- Byrjunarlið Íslands í leiknum -

Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður - 2 (12 varin skot - 46:58 mín.) Átti stórkostlegan leik gegn Ungverjalandi en fann sig ekki í dag. Réði ekkert við langskot Króatanna sem skoruðu nánast í hverri sókn. Fór af velli um miðbik fyrri hálfleiks en kom svo inn á í þeim seinni. Var skárri þá en frammistaða Viktors í dag olli vonbrigðum.

Orri Freyr Þorkelsson, vinstri hornamaður - 2 (4/2 mörk - 54:06 mín.) Spilaði allan tímann, nema þegar hann fór út af eftir að hafa meiðst undir lok leiks. Skoraði fjögur mörk en klikkaði á þremur skotum, þar af einu víti. Getur betur en hann sýndi í dag.

Janus Daði Smárason, vinstri skytta - 2 (2 mörk - 44:56 mín.) Fann sig ekki í fyrri hálfleik, hvorki í vörn né sókn. Byrjaði seinni hálfleikinn vel og stóð sig mun betur þar. Tapaði nokkrum boltum klaufalega og hefði mátt sýna meira frumkvæði í vörninni í fyrri hálfleik. 

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 4 (0 mörk - 29:44 mín.) Þrátt fyrir að hafa ekki skorað í leiknum var Gísli allt í öllu í sóknarleik Íslands. Spilaði miklu betur en gegn Króatíu fyrir ári og stýrði sókninni heilt yfir mjög vel. Duglegur að finna félaga sína, gaf sjö stoðsendingar og náði auk þess í sex víti. Hefur verið mjög góður á mótinu en þarf meiri hjálp. 

Ómar Ingi Magnússon, hægri skytta - 3 (8/5 mörk - 54:29 mín.) Miklu betri frammistaða en gegn Ungverjalandi. Vítaklikkin tvö voru rándýr og Ómar virkaði á köflum ragur í sókninni. Gerði fá mistök en spilaði ekki vel í vörninni í fyrri hálfleik, ekki frekar en aðrir leikmenn Íslands. Spilaði kannski full mikið í leiknum.

Óðinn Þór Ríkharðsson, hægri hornamaður - 5 (8 mörk - 50:34 mín.) Frábær frammistaða hjá Óðni. Skoraði átta mörk úr átta skotum. Gríðarlega sannfærandi og öruggur í færunum sínum og lagði sitt af mörkum í vörninni. Fiskaði tvisvar sinnum ruðning á sóknarmenn Króatíu.

Elliði Snær Viðarsson, línumaður - 2 (3 mörk - 49:46 mín.) Íslenska liðið þarf sterkari línumann til að komast í fremstu röð. Elliði fer of illa með færin sín, var bara með sextíu prósent skotnýtingu í dag og tapaði boltanum tvisvar. Slakur í vörninni í fyrri hálfleik og þarf að gera meira í fjarveru Elvars Arnar Jónssonar.

Ýmir Örn Gíslason, línumaður - 2 (0 mörk - 30:23 mín.) Hefur verið afar sterkur í vörninni á mótinu en átti sinn slakasta leik á EM í dag. Fékk ekkert við ráðið í fyrri hálfleik en var betri í þeim seinni.

- Menn sem komu inn af bekknum í leiknum -

Einar Þorsteinn Ólafsson, varnarmaður - 2 (0 mörk - 14:51 mín.) Eftir frábæra innkomu í síðasta leik kom Einar ekki inn á fyrr en um miðjan fyrri hálfleik í dag. Tókst ekki að stimpla sig jafn vel inn og á þriðjudaginn.

Arnar Freyr Arnarsson, línumaður - (1 mark - 4:41 mín.) Spilaði of lítið til að fá einkunn. Skoraði úr eina skotinu sínu af línunni. 

Viggó Kristjánsson, hægri skytta - 3 (2 mörk - 11:18 mín.) Fékk ekki margar mínútur en nýtti þær ágætlega. Skoraði tvö mörk en brást bogalistin á vítalínunni í eitt skipti. 

Haukur Þrastarson, vinstri skytta - 2 (1 mark - 8:51 mín.) Kom inn á um miðjan fyrri hálfleik og skoraði eitt mark. Fékk síðan þungt högg frá Zvonimir Srna og spilaði ekkert meira í fyrri hálfleik. Kom lítið við sögu í þeim seinni en hafði ekki mikil áhrif á leikinn. 

Bjarki Már Elísson, vinstri hornamaður - (0 mörk - 3:26 mín.) Kom inn á undir lokin þegar Orri meiddist. Fékk á sitt eitt víti en fiskaði annað. Spilaði of lítið til að fá einkunn.

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður - 1 (0 varin skot - 11:45 mín.) Eins og í leiknum gegn Króatíu fyrir ári kom Björgvin inn á eftir að Viktor hafði ekki náð sér á strik. Því miður var útkoman sú sama og í fyrra. Varði ekkert af þeim sjö skotum sem hann fékk á sig.

Teitur Örn Einarsson, hægri hornamaður - Spilaði ekkert.

Þorsteinn Leó Gunnarsson, vinstri skytta - x (0 mörk - 12 sek.) Kom inn í íslenska hópinn í fyrsta sinn á mótinu. Tók eitt neyðarskot sem fór yfir.

Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Sýnar leikmönnum einkunnir fyrir frammistöðu sína.

Leikmenn fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Útskýring á einkunnum

  • 6 - Heimsklassa frammistaða
  • 5 - Frábær frammistaða
  • 4 - Góð frammistaða
  • 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu
  • 2 - Ekki nógu góð frammistaða
  • 1 - Slakur leikur

Tengdar fréttir

Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“

„Plaffaðir í kaf og lítil markvarsla. Menn eru allt of mikið að gleyma sér,“ sagði Ólafur Stefánsson í hálfleik leiks Íslands og Króatíu á EM í handbolta, ómyrkur í máli þegar talið barst að hriplekri vörn Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×