Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. janúar 2026 10:23 Frá vettvangi brunans í dag. Vísir/Bjarni Íbúa í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í Reykjanesbæ er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans eftir eldsvoða sem kom upp í íbúð í húsinu í gærkvöldi. Sjö hundar drápust í eldsvoðanum. Það var klukkan 22:54 í gærkvöldi sem lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um eld í fjölbýlishúsi í götunni Vatnsholti. Lögregla, sjúkra- og slökkvilið fóru á vettvang á hæsta forgangi. Íbúð konunnar er mikið skemmd.Brunavarnir Suðurnesja Þegar fyrstu lögreglumenn komu á vettvang í gær mátti sjá mikinn eld koma frá íbúð á fyrstu hæð hússins. Fjölbýlishúsið er á tveimur hæðum með sex íbúðum. Kona sem býr í húsinu var enn inni en aðrir íbúar komnir út. Konan fannst skömmu síðar í íbúð sinni og var flutt með sjúkrabifreið til Reykjavíkur. Hún liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítalans og er haldið sofandi. Frá vettvangi í gærkvöldi.Brunavarnir Suðurnesja Aðrir íbúar, 15 talsins, voru fluttir á öruggan stað skammt frá vettvangi þar sem þau fengu stuðning og liðsinni frá starfsmönnum Rauða Krossins. Þar var þeim veitt áfallahjálp. Flestir gátu leitað skjóls í nótt hjá ættingjum en Rauði krossinn á Suðurnesjum aðstoðaði aðra með næturgistingu. Fólk hefur ekki getað snúið aftur til síns heima því enn á eftir að reykræsta aðrar íbúðir. Vettvangsrannsókn er í gangi hjá lögreglunni á Suðurnesjum sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sjö hundar sem voru í íbúðinni drápust í eldsvoðanum, einn lifði og einn er ófundinn samkvæmt tilkynningu lögreglu. Veistu meira um málið? Áttu myndir frá störfum slökkviliðs í gærkvöldi? Við tökum við ábendingum hér. Hundar Reykjanesbær Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fleiri fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar Sjá meira
Það var klukkan 22:54 í gærkvöldi sem lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um eld í fjölbýlishúsi í götunni Vatnsholti. Lögregla, sjúkra- og slökkvilið fóru á vettvang á hæsta forgangi. Íbúð konunnar er mikið skemmd.Brunavarnir Suðurnesja Þegar fyrstu lögreglumenn komu á vettvang í gær mátti sjá mikinn eld koma frá íbúð á fyrstu hæð hússins. Fjölbýlishúsið er á tveimur hæðum með sex íbúðum. Kona sem býr í húsinu var enn inni en aðrir íbúar komnir út. Konan fannst skömmu síðar í íbúð sinni og var flutt með sjúkrabifreið til Reykjavíkur. Hún liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítalans og er haldið sofandi. Frá vettvangi í gærkvöldi.Brunavarnir Suðurnesja Aðrir íbúar, 15 talsins, voru fluttir á öruggan stað skammt frá vettvangi þar sem þau fengu stuðning og liðsinni frá starfsmönnum Rauða Krossins. Þar var þeim veitt áfallahjálp. Flestir gátu leitað skjóls í nótt hjá ættingjum en Rauði krossinn á Suðurnesjum aðstoðaði aðra með næturgistingu. Fólk hefur ekki getað snúið aftur til síns heima því enn á eftir að reykræsta aðrar íbúðir. Vettvangsrannsókn er í gangi hjá lögreglunni á Suðurnesjum sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sjö hundar sem voru í íbúðinni drápust í eldsvoðanum, einn lifði og einn er ófundinn samkvæmt tilkynningu lögreglu. Veistu meira um málið? Áttu myndir frá störfum slökkviliðs í gærkvöldi? Við tökum við ábendingum hér.
Veistu meira um málið? Áttu myndir frá störfum slökkviliðs í gærkvöldi? Við tökum við ábendingum hér.
Hundar Reykjanesbær Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fleiri fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar Sjá meira