Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 1. febrúar 2026 14:55 Fjöldi sjúkraflutningamanna bíður þess að flytja inniliggjandi sjúklinga frá Gasa eftir að opnað verður fyrir umferð um landamærin. AP Ísraelar stefna á að opna landamæri Gasa og Egyptalands við Rafah-borg á morgun. Einungis íbúum Gasa verður hleypt um landamærin.
Landamærin hafa verið ein þau fjölförnustu meðal hjálparstarfsmanna meðan á stríðinu hefur staðið. Áður en Ísraelar lýstu yfir stríði á hendur Hamas í október 2023 voru landamærin eina útgönguleið íbúa frá Gasa. Síðan í maí 2024, hafa þau að mestu leyti verið lokuð, að því er kemur fram í frétt Reuters. Samkvæmt upplýsingum frá COGAT-deild Ísraelshers, sem sér um samhæfingu mannúðarstarfs á svæðinu, opna landamærin á morgun. Einungis gangandi vegfarendum verður hleypt um landamærin og öryggiseftirlit við þau verður samkvæmt ísraelskum stjórnvöldum strangt. Búist er við umferð bæði út af svæðinu og inn á það, en talsvert meiri umferð út. Sem fyrr segir er Palestínumönnum einum heimiluð umferð um landamærin. Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöldum á Gasa bíða 20 þúsund inniliggjandi sjúklingar þess að yfirgefa Gasaströndina. Þrjátíu drepnir í gær Opnun landamæranna við Rafah er stór liður í fyrsta fasa áætlunar Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að koma á varanlegum friði á Gasa. Vopnahlé tók gildi í október en bæði Ísraelar og Hamas-liðar hafa sakað andstæðinginn um vopnahlésbrot. Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á Gasa hafa Ísraelar drepið yfir fimm hundruð manns síðan vopnahléið átti að taka gildi. Í gær drápu Ísraelar að minnsta kosti þrjátíu manns í loftárásum sem voru þær umfangsmestu síðan vopnahléið tók gildi. Ísraelsher sagði árásirnar hefndaraðgerðir vegna vopnahlésbrota vígamanna Hamas, sem herinn sagði að hefðu komið sér fyrir í neðanjarðargöngum í Rafah. Í næsta fasa friðaráætlunar Trumps felst meðal annars að stjórn yfir Gasaströndinni verði falin tækniveldissinnum, Hamas afvopnist og Ísraelsher dragi úr hernaði á svæðinu. Hamas hefur margsinnis neitað að afvopnast og Ísraelsher í leið ýjað að því að ef samtökin afvopnist ekki á friðsamlegan hátt verði þau afvopnuð með hervaldi.
Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Ísrael Tengdar fréttir Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Ísraelski herinn segist hafa endurheimt líkamsleifar síðasta gíslsins sem enn var saknað á Gasa eftir hryðjuverkaárás og gíslatökur Hamas í október 2023. Nokkuð umfangsmikil leit hafði staðið yfir að Ran Gvili, sem var sá síðasti sem enn var saknað eftir að samkomulag um vopnahlé milli Ísraela og Hamas tók gildi í október síðastliðnum. 26. janúar 2026 14:22 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Sjá meira
Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Ísraelski herinn segist hafa endurheimt líkamsleifar síðasta gíslsins sem enn var saknað á Gasa eftir hryðjuverkaárás og gíslatökur Hamas í október 2023. Nokkuð umfangsmikil leit hafði staðið yfir að Ran Gvili, sem var sá síðasti sem enn var saknað eftir að samkomulag um vopnahlé milli Ísraela og Hamas tók gildi í október síðastliðnum. 26. janúar 2026 14:22