Brottvísanir verði beittasta vopnið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. febrúar 2026 20:01 Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Bjarni Nýtt samræmt verklag við brottvísun brotahópa frá EES-ríkjunum verður beittasta vopn stjórnvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi hér á landi, að mati sérfræðings hjá lögreglunni. Dómsmálaráðherra kynnti í morgun stefnu og aðgerðir sem ráðist verður í.
Fjöldi glæpahópa hérlendis hefur tvöfaldast á tíu árum og tilfellum fjölgað þar sem þeir beita öðrum fyrir sig til ofbeldisverka. Dómsmálaráðherra segir að með nýrri stefnu fylgi skýr skilaboð til brotahópa um að það borgi sig ekki að leita til Íslands. „Árangur í þessum efnum snýst mjög mikið um það að lögregla stilli saman strengi, vinni sem einn maður og nálgist verkefnin eins. Þetta snýst líka um það að opinberar stofnanir vinni saman. Lögregla sé í nánu samstarfi við Vinnumálastofnun, Útlendingastofnun og svo framvegis. Það er til statistík um það, við sjáum að brottvísanir eru að aukast og greiningar og samtal er forsenda árangurs.“ Þá hafi lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fyrst merkt aukinn fjölda brota af hálfu útlendinga frá EES-svæðinu fyrir þremur árum. Nú vinni stjórnvöld að því að koma á samræmdu verklagi á landinu öllu sem snýr að brottvísun þeirra sem hafi þegar gefið góða raun. „Það er að skila árangri, það er að brjóta upp þessa skipulögðu brotastarfsemi sem er að eiga sér stað,“ segir Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Þannig teljum við að með því að beita þessu mjög markvvist á landsvísu í heild þar sem allir fara eftir sama verklagi munum við þannig ná að spyrna gegn því að skipulögð brotastarfsemi nái að festa hér rætur.“ Færst hefur í aukana á samfélagsmiðlum að lögregla tilkynni um slíkar brottvísanir. Ráðherra segist eiga von á fleiri slíkum tilkynningum. „Þjóðerni er ekki stóra málið í þessu samhengi heldur einfaldlega að lögregla er að upplýsa að þau eru í aðgerðum. Þau er að fylgjast með og bregðast við. Þau hafa verið að segja frá þessum brottvísunum, það er að segja glæpamanna sem eru beinlínis komnir hingað til lands til þess að vera í afbrotastarfsemi. Ég á von á því að þau muni halda því áfram já.“
Lögreglumál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Sjá meira