„Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 3. febrúar 2026 20:32 Snorri Jakobsson hagfræðingur eigandi Jakobsson capital. vísir/anton brink Hagfræðingur og greinandi telur langt þangað til stýrivextir verði lækkaðir á nýjan leik. Afnám verðtryggingar sem forsætisráðherra hefur boðað sé engin töfralausn þó að margt sé jákvætt við áformin.
Forsætisráðherra hefur boðað að fyrsta skrefið til að afnema verðtryggð lán hér á landi verði stigið um áramótin. Þetta er kynnt sem liður í því að ná tökum á þrálátri verðbólgu hér á landi sem hefur mælst of mikil til lengri tíma. Núna síðast mældist hún 5,2 prósent. Snorri Jakobsson, hagfræðingur og eigandi Jakobsson capital, segir afnám verðtryggingar ekki leysa öll vandamálin. „Það er engin töfralausn en ég sé margt mjög jákvætt í því skrefi. Í fyrsta lagi mun það auka skilvirkni Peningastefnunefndar, ákvarðana Seðlabankans og gegnsæi því nafnvextir taka meiri breytingum við stýrivaxtabreytingar og fyrr líka. Sömuleiðis held ég að þetta muni mögulega auka skilvirkni fjármálamarkaða. Vegna þess að fjármagn mun fara í auknum mæli í gegnum bankakerfið en síðar í gegnum lífeyriskerfið. Það mun þrýsta lífeyrissjóðunum inn á skuldabréfamarkað, þannig að þeir verða virkari þátttakendur þar með því að fjármagna innviðauppbyggingu eða fyrirtækjarekstur.“ Afnám verðtryggingarinnar muni ekki hafa verulega neikvæð áhrif á fyrstu kaupendur að hans mati. Afnámið hafi áhrif á kaupmátt og gerir það að verkum að fólk verði ólíklegra til að skuldsetja sig. „Annað jákvætt skref í þessu er að þetta gæti mögulega þrýst á stærri fasteignir og þrýst fasteignaverði aðeins niður. Þetta gæti þrýst á fólk að eiga meira fyrir því sem það er að kaupa í fasteign. Það eru ekki margir sem eiga 200 til 250 milljónir króna en það eru rosalega margir sem geta skuldsett sig fyrir 150 milljónum í óverðtryggðum lánum því greiðslubyrðin er svo létt. Ég held að það gæti fyrst og fremst haft áhrif á stærri eignir og fyrir þá sem eru að kaupa mjög dýrar eignir. Þar eru lánin hærri og áhrifin meiri.“ Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kemur saman á morgun til að kynna stýrivaxtaákvörðun sína. Talið er að stýrivextirnir haldist óbreyttir eða hækki lítillega. „Ég held að það gæti orðið nokkuð langt í stýrivaxtalækkun, nokkuð langt því miður. Þetta var náttúrulega ákveðið áfall. Það voru tvær verðbólgumælingar sem voru mjög háar. Svo er líka annað í þessu sem er að verðbólgan á Íslandi er hærri því það var tekin sú ákvörðun hér á landi að fella fasteignaverð út úr vísitölu neysluverðs. Af þeim ástæðum er verðbólga einu prósentu hærri síðustu daga. Af þeim ástæðum er verðbólga einu prósenti hærri en hún væri annars.“
Verðlag Fasteignamarkaður Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Seðlabankinn Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira