Körfubolti

„Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“

Ísak Orri Leifsson Schjetne skrifar
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson fagnar með liðsfélögum sínum í leikslok,
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson fagnar með liðsfélögum sínum í leikslok, Vísir/Anton

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson þekkir það að vinna titil með KR sem aukaleikari en í dag varð hann bikarmeistari sem fyrirliði KR-liðsins.

Þórir átti flottan leik í sannfærandi sigri á Stjörnunni með 17 stigum og níu stoðsendingum.

„Ég er ógeðslega glaður, ógeðslega stoltur af þessu liði og við komum heldur betur tilbúnir í þennan leik. Við ætluðum okkur að vinna hann og það tókst - ég veit ekki hvað ég á að segja meira,“ sagði Þórir eftir leik.

KR-ingar komu gríðarlega grimmir til leiks, náðu forystu og héldu henni út leikinn. Gekk allt eftir?

„Svona mestmegnis. Þeir eru með gríðarlega gott lið, fullt af vopnum og við reyndum að takast á þeim sem gekk þokkalega - þeir vilja keyra upp hraðann og við náðum að halda þeim í 84 stigum og það uppskar sigurinn. Við náðum mikið af sóknarfráköstum í fyrri hálfleik en ekki alveg jafn mikið í þeim seinni, það var eini munurinn,“ sagði Þórir.

KR-liðið fékk frábæran stuðning í bikarúrslitaleiknum.

„Það er ekkert lið á Íslandi sem býr til svona orku. Ég er svo glaður að sjá allt þetta fólk hérna, maður þekkir hvert einasta andlit, KR, þetta er engu líkt. Ég er svo þakklátur fyrir þennan stuðning og við ætlum að skemmta okkur í kvöld,“ sagði Þórir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×