Martin missir af landsleikjunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. febrúar 2026 21:21 Martin Hermannsson getur ekki hjálpað íslenska landsliðinu í mikilvægum leikjum seinna í þessum mánuði. Getty/Mateusz Birecki/ Íslenska karlalandsliðið í körfubolta verður án eins síns besta leikmanns í komandi landsleikjum í lok mánaðarins. Bakvörðurinn frábæri Martin Hermannsson meiddist á þumalputta og verður frá í rúman mánuð.
ALBA Berlin segir frá því að Martin verði frá keppni í um það bil sex vikur eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum liðbandameiðslum í þumalputta í sigri ALBA Berlin á Karditsa Iaponiki í Meistaradeildinni í körfubolta á miðvikudaginn. Eftir læknisskoðun eftir leikinn kom í ljós alvarleiki meiðslanna. Alba Berlin staðfesti meiðslin á miðum sínum. Martin verður ekki með Alba Berlin í baráttunni um sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar auk þess að missa af leikjum í þýsku deildinni. Í Meistaradeildinni er Martin með 9,0 stig og 6,4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Þessi sex vikna batatími hefur því ekki aðeins áhrif á þýska liðið heldur einnig á A-landslið Íslands. Gert er ráð fyrir að Martin missi af tveimur leikjum gegn Litháen, heima og að heiman, 27. febrúar og 2. mars, þegar keppni hefst að nýju í D-riðli í undankeppni Evrópu fyrir HM FIBA 2027. Martin meiddist í leik á móti Bretum í síðasta glugga og var þá frá keppni í nokkrum leikjum með Berlínarliðinu. Eftir landsleikjahléið í nóvember, þar sem Ísland, Bretland, Litháen og Ítalía mættust, eru öll liðin jöfn með 1-1. Þrjú efstu liðin í lokastöðunni eftir sex leiki komast áfram í næstu umferð. Verletzungsupdate 🩹Bad news: Martin Hermannsson hat sich im BCL-Spiel gegen Karditsa am Daumen verletzt. Eine Untersuchung durch unsere Teamärzte im @ukbberlin ergab eine schwerere Bandverletzung. Damit wird uns Martin für circa sechs Wochen fehlen.Gute Besserung! 🙏 pic.twitter.com/p4tveOmH33— ALBA BERLIN (@albaberlin) February 6, 2026
Landslið karla í körfubolta Þýski körfuboltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Sjá meira