Takk fyrir traustið! Hörður Arnarson skrifar 10. febrúar 2026 10:02 Orkumannvirkjum fylgir óhjákvæmilega rask á umhverfi og náttúru. Þess vegna er mikilvægt að stjórnendur og eigendur orkufyrirtækja sem nýta auðlindir landsins séu meðvitaðir um það sem kallað hefur verið samfélagslegt leyfi til athafna. Að vandað sé svo til framkvæmda og alls sem þeim fylgir að almenningur geti verið sáttur við kostnað á móti ávinningi. Þetta gildir að sjálfsögðu hvort sem landsvæðið er í einkaeigu eða eigu hins opinbera. 66 á móti 6 Landsvirkjun hefur fengið Gallup til að kanna afstöðu þjóðarinnar til starfsemi fyrirtækisins um árabil, meðal annars til að ganga úr skugga um að við höfum þetta leyfi og meta hvað sé hægt að bæta. Það hefur verið einkar ánægjulegt fyrir okkur, starfsfólk orkufyrirtækis þjóðarinnar, að sjá hvernig stuðningurinn og traustið hefur farið vaxandi undanfarin ár. Síðasta könnun, sem gerð var í október og nóvember í fyrra, sýnir til að mynda að 94% svarenda eru jákvæð eða hlutlaus í garð Landsvirkjunar (66% jákvæð, 29% hlutlaus) á meðan 6% eru neikvæð. Þetta eru ekki ný tíðindi, því kannanir hafa ítrekað sýnt svipaða niðurstöðu á undanförnum árum. Niðurstaðan er reyndar enn betri í sumum landshlutum, til að mynda í nærsamfélagi stærstu aflstöðvar okkar á Austurlandi, þar sem um og yfir 80% eru jákvæð, en aðeins 3-5% neikvæð. Þetta sveiflast auðvitað aðeins á milli ára en segjum að þetta séu 5-10% þjóðarinnar. Þessi hópur er okkur mikilvægur. Þau veita aðhald og hjálpa okkur að gera betur, en miðað við opinbera umræðu mætti þó stundum halda að hann væri töluvert stærri en raun ber vitni. Niðurstöður kannana staðfesta ítrekað að drjúgur meirihluti Íslendinga er jákvæður í garð Landsvirkjunar og langflestir aðrir hlutlausir. Það er okkur afar dýrmætt. Að sama skapi kemur einnig í ljós í könnuninni að rúmlega ¾ hlutar landsmanna telja Landsvirkjun traust fyrirtæki og svarendur telja almennt að Landsvirkjun sinni náttúruvernd, umhverfis- og loftslagsmálum vel og að framlag fyrirtækisins til verðmætasköpunar sé mikið og mikilvægt. Græn atvinnuuppbygging og orkuskipti Með aukinni umræðu um loftslags- og umhverfismál hafa æ fleiri gert sér grein fyrir einstakri stöðu okkar Íslendinga. Við erum þegar búin að ljúka tvennum orkuskiptum – við hitum húsnæði með jarðhita og raforkukerfið okkar er að nær öllu leyti rekið með endurnýjanlegri orku. Þriðju orkuskiptin standa nú yfir, þar sem við skiptum út jarðefnaeldsneyti fyrir umhverfisvæna orkugjafa. Ef við tökum húshitun út fyrir sviga stendur innflutt olía enn undir 40% af orkunotkun hérlendis. Þeirri tölu viljum við auðvitað ná niður eins hratt og hægt er. Þetta snýst samt ekki bara um orkuskiptin. Við nýja atvinnuuppbyggingu þarf líka að tryggja að horft sé til greina sem geti nýtt endurnýjanlega orku, frekar en þeirra sem byggja á aukinni notkun jarðefnaeldsneytis. Þar eiga atvinnutækifæri framtíðarinnar að liggja. Umhverfismeðvituð og jákvæð yngri kynslóð Það gleður mig því sérstaklega að sjá hve jákvæðni og traust vaxa mikið í hópi yngstu svarendanna, kynslóðarinnar sem er almennt meðvitaðri um umhverfismál en við sem eldri erum. Kynslóðar sem vill frekar geta notað innlenda, endurnýjanlega orku en þá milljón tonna af innfluttu jarðefnaeldsneyti sem við brennum núna á hverju ári. Yngri þátttakendum fjölgar þannig mikið í hópnum sem er fylgjandi frekari virkjunarframkvæmdum. Í heildina eru 15% andvíg en 85% hlynnt eða hlutlaus (70% hlynnt, 15% hlutlaus). Það vekur reyndar athygli mína að í hópi þeirra sem eru hlynnt fjölgar yngri konum mest. Dregur saman með kynjunum Hingað til hafa karlar verið töluvert jákvæðari en konur í garð starfsemi fyrirtækisins og svo er enn. Upp á síðkastið hefur þó dregið töluvert saman með kynjunum. Ekki vegna þess að stuðningur karla hafi dvínað, heldur hefur stuðningur kvenna farið vaxandi. Umræða um orkumál var lengi vel mjög karllæg, en það hefur breyst hratt síðustu ár. Samtalið er miklu opnara og fjölbreyttara en áður og þessi málaflokkur er orðinn almennt umræðuefni sem miðaldra verkfræðingar (eins og ég) eiga ekki að einoka. Ef til vill hangir þetta líka að einhverju leyti saman við hvað konum hefur fjölgað mikið í orkugeiranum, þar á meðal í áberandi stjórnunarstöðum. Við hjá Landsvirkjun höfum unnið markvisst að því að jafna hlut kynjanna og hjá okkur stýra konur til dæmis bæði stærstu framkvæmdum fyrirtækisins og stærstu samningum sem gerðir eru á landinu. Þakklæti Traustið sem við njótum frá þjóðinni, Alþingi og nærsamfélaginu er okkur ómetanleg hvatning til þess að halda áfram á þeirri braut sem Landsvirkjun hefur verið á síðustu 60 ár: Að nýta orkuauðlindir í þágu þjóðarinnar og hámarka verðmæti þeirra svo hægt sé að bæta lífsgæði okkar allra. Starfsfólk okkar leggur sig allt fram á hverjum einasta degi til að standa undir því. Takk fyrir traustið! Hörður er forstjóri Landsvirkjunar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hörður Arnarson Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson Skoðun