Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Samúel Karl Ólason skrifar 11. febrúar 2026 10:02 Flugvöllurinn í El Paso þjónustar stórt svæði í Texas og Nýju-Mexíkó. Ekki liggur fyrir af hverju búið er að loka honum fyrir flugumferð í tíu daga. Getty/Kirby Lee Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna (FAA) lokaði í nótt fyrir flugumferð til og frá alþjóðaflugvellinum í El Paso í Texas og nærliggjandi svæðum. Enginn má fljúga þangað í að minnsta kosti tíu daga og engin ástæða hefur verið gefin upp, önnur en sú að þetta sé vegna „sérstakra öryggisástæðna“.
Í skipun FAA, sem finna má hér, segir að flugmenn sem fylgi ekki lokuninni og skipunum flugumferðarstjóra gætu verið handteknir eða jafnvel skotnir niður. Um milljón manns búa í El Paso og er 23. stærsta borg Bandaríkjanna. Hún er á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Forsvarsmenn flugvallarins sögðu í yfirlýsingu, sem vitnað er í í grein New York Times, að lokunin hefði átt lítinn aðdraganda. Þeir segjast vera að bíða eftir frekari upplýsingum frá yfirvöldum. Svipaða sögu er að segja af borgaryfirvöldum í El Paso og þingmönnum sem hafa verið spurðir út í lokunina. Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna hefur ekki svarað fyrirspurnum fjölmiðla um málið. Fjölmiðlar vestanhafs segja lokun flugumferðar um svo stóra borg hafi ekki átt sér stað í Bandaríkjunum frá árásunum á Tvíburaturnana í New York árið 2001. Umrætt bannsvæði nær í tíu sjómílna radíus út frá flugvellinum. Það samsvarar 18,5 kílómetrum og nær einnig til bæjarins Santa Teresa í Nýju Mexíkó, samkvæmt frétt El Paso Times. Bannið nær einnig yfir herstöð í El Paso. Flugmönnum er þó heimilt að fljúga yfir þetta svæði í mikilli hæð.
Bandaríkin Fréttir af flugi Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira