Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Samúel Karl Ólason skrifar 12. febrúar 2026 11:33 Lokun flugvallarins í El Paso kom fólki mjög á óvart og hefur gengið erfiðlega að fá almennileg svör um af hverju gripið var til þessa ráðs. AP/Morgan Lee Starfsmenn Landamæraeftirlits Bandaríkjanna fengu mjög kröftugan leisgeisla lánaðan hjá varnarmálaráðuneytinu en notkun hans í El Paso leiddi til þess að Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna (FAA) tilkynnti óvænt að alþjóðaflugvellinum í borginni yrði lokað í tíu daga.
Lokunin á flugvellinum og bann við flugumferð á svæðinu kringum hann vakti mikla furðu í fyrrinótt en hún var sett á að því er virðist án nokkurs samráðs við heimamenn eða aðra utan FAA. Lokuninni fylgdu skilaboð um að ef einhver færi fljúgandi um svæðið væri hætta á að viðkomandi yrði skotinn niður. Erfiðlega gekk að fá svör um lokunina í gær en svo var skyndilega tilkynnt að henni væri lokið, nokkrum klukkustundum eftir að tíu daga lokunin var tilkynnt. Aftur gekk erfiðlega að fá svör en heimildarmenn fjölmiðla vestanhafs sögðu lokunina hafa tengst drónaflugi frá Mexíkó. Slíkt gerist þó mjög oft í El Paso og annars staðar á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Sjá einnig: Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Nú hafa fjölmiðlar ytra sagt frá því að fyrr í vikunni hafi Landamæraeftirlitið (CBP) sem er ein fjölda stofnana undir heimavarnaráðuneytinu, fengið lánaðan leysigeisla frá varnamálaráðuneytinu en hann er hannaður til að granda drónum. Herinn hefur verið að gera tilraunir með þetta vopn á undanförnum mánuðum. Geislanum mun hafa verið komið fyrir nærri Fort Bliss, sem er herstöð í El Paso, en samkvæmt heimildum AP-fréttaveitunnar höfðu forsvarsmenn CBP ekkert samráð við FAA um vopnið eða notkun þess. CNN segir að starfsmenn CBP hafi notað vopnið í vikunni en ekki gegn drónum sem glæpamenn frá Mexíkó hafi flogið yfir landamæri Bandaríkjanna eins og ríkisstjórnin hefur haldið fram. Þess í stað hafi það verið notað til að skjóta niður fjórar helíumblöðrur. Þegar komist var að því að starfsmenn CBP væru að nota öflugan leisigeisla nærri mjög stórum alþjóðaflugvelli tóku stjórnendur FAA þá ákvörðun að loka flugvellinum í öryggisskyni. Til stóð að halda fund um notkun vopnsins seinna í mánuðinum og var ekki búist við því að það yrði tekið í notkun strax. Sú ákvörðun að loka lofthelginni kringum flugvöllinn var ekki tilkynnt til Hvíta hússins og kom hún mönnum þar, eins og víðast annars staðar, á óvart.
Bandaríkin Fréttir af flugi Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Fleiri fréttir Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira