Netverslun með áfengi: framgangur frelsis eða ógn við lýðheilsu? Jóhanna Pálsdóttir og Hákon Skúlason skrifa 14. febrúar 2026 00:04 Áfengismarkaðurinn á Íslandi stendur á tímamótum. Undanfarin ár hefur myndast lagaleg og pólitísk spenna vegna netsölu áfengis. Einkareknar vínbúðir hafa hafið starfsemi í skjóli EES-samningsins á sama tíma og ríkiseinokun ÁTVR stendur enn formlega samkvæmt lögum. Þetta er ekki lengur fræðileg umræða heldur raunveruleg staða þar sem lög, markaður og samfélagsleg gildi rekast á. Annars vegar eru rök um frelsi, jafnræði og samkeppni. Talsmenn breytinga benda á að ríkið eigi ekki að starfa á smásölumarkaði og að einkaaðilar séu fyllilega færir um að sinna sölu á löglegri neysluvöru, rétt eins og gert er með aðrar vörur sem krefjast reglusetningar og eftirlits. Þeir vísa til þess að bann við áfengisauglýsingum virki í reynd ekki, að netsala sé þegar orðin staðreynd og að íslensk löggjöf sé komin úr takti við raunveruleikann. Spurningin sem þeir leggja fram er einföld: Á löggjafinn að laga sig að breyttum veruleika eða halda áfram að verja kerfi sem er þegar farið að molna? Hins vegar eru sterk lýðheilsusjónarmið. Áfengi er ekki hefðbundin neysluvara. Fjölmargar rannsóknir sýna tengsl milli aðgengis og neyslu og ljóst er að samfélagslegur kostnaður vegna áfengis er verulegur – í heilbrigðiskerfi, félagsþjónustu, ofbeldi, slysum og afleiðingum fyrir fjölskyldur og börn. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur lagt áherslu á að takmarkað aðgengi, skýrt regluverk og stýring á sölu séu meðal áhrifaríkustu leiða til að draga úr skaðlegum áhrifum áfengis. Nýlegar rannsóknir og umfjöllun lækna undirstrika jafnframt að áfengi er krabbameinsvaldandi efni og að neysla þess tengist aukinni áhættu á að minnsta kosti sjö tegundum krabbameina, þar á meðal brjóstakrabbameini, ristil- og endaþarmskrabbameini, lifrarkrabbameini, vélindakrabba, og krabbameinum í munnholi, koki og barkakýli. Mikilvæg niðurstaða þessara rannsókna er að engin „örugg neyslumörk“ eru til þegar kemur að krabbameinsáhættu – jafnvel lítil neysla getur aukið líkur. Þessi þekking styrkir þau rök að áfengisstefna sé ekki einungis markaðs- eða samkeppnismál, heldur fyrst og fremst lýðheilsumál. Deilan snýst því ekki einfaldlega um það hver selur áfengið. Hún snýst um jafnvægið milli einstaklingsfrelsis og samfélagslegrar ábyrgðar. Hún snýst um það hvort við getum mótað regluverk sem tryggir bæði virka samkeppni og sterkar forvarnir. Hún snýst um jafnræði gagnvart innlendum aðilum þegar erlendar netverslanir hafa þegar aðgang að íslenskum neytendum. Og hún snýst um hvort núverandi fyrirkomulag standist í raun tímans tönn. Þingmenn Viðreisnar hyggjast leggja fram frumvarp til að skýra lagalega stöðu netsölu og höggva á þann hnút sem nú hefur myndast. Slíkar breytingar kalla hins vegar á yfirvegaða og málefnalega umræðu. Hvernig tryggjum við að samkeppni sé raunveruleg en ekki til málamynda? Hvernig verndum við lýðheilsu án þess að festast í kerfi sem er þegar farið að veikjast? Og hvernig tryggjum við að lög og framkvæmd fari saman? Til að ræða þessi álitamál frá ólíkum sjónarhornum stendur málefnaráð Viðreisnar fyrir opnum fundi undir yfirskriftinni „Netverslun með áfengi – framgangur frelsis eða ógn við lýðheilsu?“ Fundurinn fer fram þriðjudaginn 17. febrúar kl. 20:00 í fundarsal Viðreisnar að Suðurlandsbraut 22 í Reykjavík. Á fundinum verður fjallað um lagafrumvarpsdrög Gríms Grímssonar um breytingar á áfengislöggjöf sem snúa að netverslun, afstöðu grasrótar Viðreisnar til ríkiseinokunar á smásölu, sjónarmið netverslana, forvarnaraðila og meðferðarúrræða, og það jafnvægi sem þarf að ná milli frelsis, samkeppni og lýðheilsu. Fulltrúar hagaðila munu taka til máls og fundargestum gefst tækifæri til að taka þátt í umræðum. Áfengismarkaðurinn er að breytast, hvort sem við viljum það eða ekki. Það sem skiptir máli er hvernig við bregðumst við. Við teljum mikilvægt að umræðan fari fram opinberlega þar sem ólík sjónarmið fá að njóta sín og rök takast á í stað upphrópana. Þeir sem vilja taka þátt í þessari umræðu – hvort sem þeir leggja meiri áherslu á frelsi markaðarins eða vernd lýðheilsu – eru hvattir til að mæta og leggja sitt af mörkum. Höfundar eru annars vegar kennari sem situr í málefnaráði Viðreisnar, og hins vegar framkvæmdastjóri sem situr í málefnaráði Viðreisnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Netverslun með áfengi Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Sjá meira