Viðskipti innlent

Russ DeLeon eignast Höfða Lodge

Agnar Már Másson skrifar
Russ DeLeon hefur keypt allan hlut í Höfða Lodge, sem á að opna í haust. Hótelið átti að opna 2026 en miklar tafir hafa orðið.
Russ DeLeon hefur keypt allan hlut í Höfða Lodge, sem á að opna í haust. Hótelið átti að opna 2026 en miklar tafir hafa orðið. Aðsend/LinkedIn

Breski veðmálajöfurinn Russ DeLeon hefur eignast 100 prósenta hlut í fimm stjörnu lúxushóteli sem er í uppbyggingu á Grenivík eftir að Íslendingar seldu sinn hlut í félaginu. Stefnt er á að hótelið opni dyr sínar fyrir gestum í haust en opnun hefur tafist um fjögur ár.

Fyrrverandi skíðakapparnir Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein ákváðu árið 2020 að hefja uppbyggingu á sex þúsund fermetra hóteli lúxushóteli á Þengilhöfða rétt við Grenivík í Eyjafirði, þar sem áhersla væri meðal annars lögð á þyrluskíði. Hótelið hefur enn ekki opnað.

Björgvin staðfestir við Vísi að tvímenningarnir hafi hinn 2. febrúar gengið frá sölu á 50,01 prósenta hlut sínum í hótelinu til breska kauphéðinsins James Russell „Russ“ DeLeon.

DeLeon hefur fram að þessu átt 49,99 prósent í hótelinu en á nú gervallt hótelið allt. Félagið hyggst senda út tilkynningu þessa efnis.

Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein hófu byggingu á lúxushóteli á Þengilhöfða í Eyjafirði. Nú er verkefnið komið í hendur Russ DeLeons. Þeir eiga nú aftur Viking Heliskiing og Scandic Guides í heild sinni.Aðsend

„Við ákváðum að fara aðrar leiðir, og þeir aðrar leiðir,“ segir Björgvin, og vísar þá til DeLeons og hans fólks. „Þannig að við skildum bara í góðu.“

Björgvin segir að þeir Jóhann hafi aftur á móti keypt til baka allan sinn hlut í skíðaferðafyrirtækjunum Viking Heliskiing og Scandic Guides, en Russel hafði einnig eignast hlut í þeim félögum. Tvímenningarnir ætli að einbeita sér áfram að þeim rekstri.

Höfði Lodge er farið að taka á sig mynd. Það átti að opna 2022 en framkvæmdum er enn ekki lokið.Aðsend

Veðmálakóngur sem átti þegar 49,99 prósent

DeLeon varð moldríkur af veðmálasíðunni PartyPoker.com sem hann stofnaði ásamt þáverandi eiginkonu sinni, Ruth Parasol, árið 2001. 

Árið 2005 rataði Bretinn á lista Forbes yfir 400 ríkustu menn í Bandaríkjunum. Hann á lögheimili á Gíbraltar en hefur bandarískan ríkisborgararétt enda er hann lögfræðimenntaður þaðan. Íslendingarnir kynntust DeLeon í þyrluskíðaferð sem DeLeon sótti hjá Viking Heliskiing, samkvæmt viðtali í Viðskiptablaðinu frá 2021.

Í dag er DeLeon fjárfestir, einkum á sviði fasteigna og tækni.

Hótelið sem um ræðir nefnist Höfði Lodge og átti að opna dyr sínar við sjávarþorpið 2022 en framkvæmdir hafa tafist verulega og standa enn yfir. Stöð 2, nú Sýn, fjallaði um uppbygginguna árið 2023.

Árið 2024 horfði félagið Höfði Lodge ehf. upp á 6 milljóna króna tap. Félagið er í eigu Höfða Icelandic Adventures, sem hinn sextugi DeLeon á nú allt í gegnum gegnum lúxembúrgíska félagið Illidor s.á.r.l. 

Finnur varla meiri lúxus

Í tilkynningu sem Vísir hefur undir höndum beina Björgvin og Jóhann Haukur þökkum sínum til fólksins hjá Illidor og Höfða. Tekið er fram að hótelið eigi að óbreyttu að opna 2026.

Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps, sagði við Vísi í dag að hótelið væri nú farið að taka á sig mynd. Framkvæmdir hefðu þó gengið hægt fyrir sig síðasta árið en nú sé aðallega frágangsvinna og innivinna eftir, svo sem tengingar við leiðslur.

Svona litu teikningar út.Höfði Lodge

Þar eiga að vera 40 herbergi, hvert og eitt allt að 180 fermetrar. Efnameiri túristar eru markhópur hótelsins og auk þyrluskíðaferða átti að vera boðið upp á golfhermi.

Hótelið hefur risið fyrir ofan 50 metra háan klettavegg á Þengilhöfða. Framkvæmdirnar hafa því verið umfangsmiklar enda hefur þurft að leggja nýjan veg að hótelinu.


Tengdar fréttir

Fundu eftirspurn eftir fimm stjörnu lúxus

Fimm stjörnu lúxushótel rís nú á Þengilhöfða við Eyjafjörð. Hugmyndin kviknaði í þyrluskíðamennsku á Tröllaskaga fyrir um áratug.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×