Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. febrúar 2026 11:38 Ólafur Björnsson er nýr fjármálastjóri. Ólafur Björnsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi, sem fer með rekstur Bílaumboðsins Öskju, Unu, Landfara og Dekkjahallarinnar. Hann tekur við starfinu af Jónasi Guðbjörnssyni. Ólafur mun bera ábyrgð á fjármálastjórnun samstæðunnar hér á landi.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að Ólafur hafi starfað hjá Öskju frá árinu 2017 og hafi á þeim tíma komið að fjármálastjórnun og rekstri félagsins. Áður starfaði hann hjá KPMG, fyrst á endurskoðunarsviði og síðar á ráðgjafarsviði. Ólafur er menntaður viðskiptafræðingur með BS-gráðu í viðskiptafræði og meistarapróf (M.Acc) í reikningsskilum og endurskoðun. Hann býr yfir víðtækri reynslu á sviði fjármála- og rekstrarstjórnunar, bæði úr ráðgjöf og rekstri. „Ráðning Ólafs markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Inchcape á Íslandi og mun þekking hans á starfseminni, ásamt reynslu af fjármálastjórnun, nýtast vel við að styrkja grunninn undir frekari vöxt og samhæfingu rekstursins á íslenskum markaði“, segir Jón Trausti Ólafsson, forstjóri félagsins. „Ég er þakklátur fyrir traustið og hlakka til að taka við þessu hlutverki. Ég þekki starfsemina og umhverfið vel og er spenntur fyrir því að fá tækifæri til að axla aukna ábyrgð og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu Inchcape á Íslandi, í góðu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk,“ segir Ólafur. Inchcape er alþjóðlegur, leiðandi og óháður dreifingar- og söluaðili bifreiða með um 180 ára sögu og starfsemi á fjölmörgum mörkuðum víðs vegar um heiminn. Félagið er skráð í kauphöllina í London. Í júlí 2025 var tilkynnt um samkomulag um kaup Inchcape á Öskju, Unu, Landfara og Dekkjahöllinni og hefur Inchcape því verið eigandi samstæðunnar frá september 2025.
Vistaskipti Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira