Bandarískir hermenn í Nígeríu Samúel Karl Ólason skrifar 17. febrúar 2026 16:52 Bandaríkjamenn eiga ekki að taka þátt í bardögum heldur þjálfa og aðstoða hermenn Nígeríu með öðrum hætti. Herinn stendur frammi gegn fjölmörgum ógnum víðsvegar um landið. EPA/LEGNAN KOULA Um hundrað bandarískir hermenn hafa verið sendir til Nígeríu, þar sem þeir munu þjálfa þarlenda hermenn og hjálpa þeim í átökum við uppreisnar-, víga- og glæpahópa. Þeim er ekki ætlað að taka þátt í átökum með hermönnunum sem þeir munu þjálfa.
BBC hefur eftir Samaila Uba, talsmanni varnarmálaráðuneytis Nígeríu, að samstarfið við Bandaríkjamenn muni hjálpa herafla ríkisins verulega í að berjast gegn þessum hópum. Hún muni sérstaklega hjálpa þegar kemur að sérstakri tækni og kunnáttu hermanna Nígeríu. AP-fréttaveitan segir að yfirvöld í Nígeríu hafi beðið Bandaríkjamenn um aðstoð við þjálfun, tæknilegan stuðning og upplýsingaöflun. Er það í kjölfar þess að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, var harðorður í garð Nígeríumanna og sakaði þá um að verja ekki kristna íbúa gegn meintu þjóðarmorði. Þeim ásökunum var hafnað og greinendur segja hana mikla einföldun á flókinni stöðu í Nígeríu. Vopnaðir menn, hvort sem þeir eru meðlimir glæpahópa, vígahópa eða uppreisnarhópa, ráðast reglulega á óbreytta borgara í Nígeríu, sama hverrar trúar þeir eru. Bandaríkjamenn gerðu í desember árásir gegn vígamönnum Íslamska ríkisins í norðvesturhluta Nígeríu. Yfirvöld í Bandaríkjunum staðfestu svo í síðasta mánuði að smár hópur hermanna hefði verið sendur til Nígeríu. Umræddir vígahópar eru gífurlega margir í Nígeríu og á stærra svæði í Afríku. Meðal þeirra hópa sem eru virkir á svæðinu eru Íslamska ríkið á Sahel-svæðinu, eða ISSP, Íslamska ríkið í Vestur-Afríku eða ISWAP, Jama’at Nusrat al-Islam wal-Muslimin eða JNIM, Boko Haram, svo einhverjir séu nefndir. Sjá einnig: Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Við vígamenn bætast svo glæpamenn sem stunda það að ræna fólki fyrir lausnargjald og til að þvinga það til ólöglegrar námuvinnslu.
Nígería Bandaríkin Hernaður Hryðjuverkastarfsemi Tengdar fréttir Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir „meira í vændum“ eftir að Bandaríkjaher gerði loftárásir í norðvesturhluta Nígeríu. Áhrifafólk á hægri vængnum vestanhafs fagnar árásunum ákaft. 26. desember 2025 19:59 Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Donald Trump Bandaríkjaforseti fyrirskipaði hernaðarárásir Bandaríkjahers á skotmörk hryðjuverkasamtakanna sem kennd eru við Íslamskt ríki (ISIS) í norðvesturhluta Nígeríu í gærkvöldi. 26. desember 2025 07:38 Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fjölgaði í gær verulega þeim sem mega ekki ferðast til Bandaríkjanna, eða sæta takmörkunum á ferðalögum þangað. Hann bætti tuttugu ríkjum við á lista slíkra ríkja og eru þau nú orðin 39 en ríkisstjórn hans leggur mikið púður í það að draga úr fjölda innflytjenda í Bandaríkjunum, hvort sem þeir dvelja þar með ólöglegum hætti eða ekki. 17. desember 2025 10:10 Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Rúmum tveimur árum eftir dauða Jevgenís Prígósjín, rússnesks auðjöfurs og eiganda málaliðahópsins Wagner, hefur staða Rússa í Afríku versnað töluvert. Nýi málaliðahópur Rússa, Afríkudeildin, sem rekinn er af varnarmálaráðuneytinu hefur ekki skilað sama árangri og Wagner gerði á sínum tíma, hvorki með tilliti til hagnaðar eða áhrifa. 30. september 2025 10:37 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Sjá meira
Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir „meira í vændum“ eftir að Bandaríkjaher gerði loftárásir í norðvesturhluta Nígeríu. Áhrifafólk á hægri vængnum vestanhafs fagnar árásunum ákaft. 26. desember 2025 19:59
Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Donald Trump Bandaríkjaforseti fyrirskipaði hernaðarárásir Bandaríkjahers á skotmörk hryðjuverkasamtakanna sem kennd eru við Íslamskt ríki (ISIS) í norðvesturhluta Nígeríu í gærkvöldi. 26. desember 2025 07:38
Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fjölgaði í gær verulega þeim sem mega ekki ferðast til Bandaríkjanna, eða sæta takmörkunum á ferðalögum þangað. Hann bætti tuttugu ríkjum við á lista slíkra ríkja og eru þau nú orðin 39 en ríkisstjórn hans leggur mikið púður í það að draga úr fjölda innflytjenda í Bandaríkjunum, hvort sem þeir dvelja þar með ólöglegum hætti eða ekki. 17. desember 2025 10:10
Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Rúmum tveimur árum eftir dauða Jevgenís Prígósjín, rússnesks auðjöfurs og eiganda málaliðahópsins Wagner, hefur staða Rússa í Afríku versnað töluvert. Nýi málaliðahópur Rússa, Afríkudeildin, sem rekinn er af varnarmálaráðuneytinu hefur ekki skilað sama árangri og Wagner gerði á sínum tíma, hvorki með tilliti til hagnaðar eða áhrifa. 30. september 2025 10:37