Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Eiður Þór Árnason skrifar 17. febrúar 2026 22:16 Lindsey Graham er öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins og stuðningsmaður Trumps Bandaríkjaforseta. Hann hitti Frederiksen og Nielsen um helgina. Epa/samsett Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lindsay Graham er sagður hafa hellt sér yfir Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Frederik Nielsen, formann landsstjórnar Grænlands, á öryggisráðstefnu í Þýskalandi á laugardag.
Á hann að hafa sagt að þau þyrftu einfaldlega að sætta sig við það ef Trump Bandaríkjaforseti vildi ná stjórn á Grænlandi og Graham sömuleiðis látið „f-orðið“ ítrekað falla í viðurvist þeirra. Bandaríski miðillinn Puck hefur þetta eftir heimildarmönnum sínum á ráðstefnunni í München. Ummælin hafi verið látin falla á fundi þingmanna bandarísku fulltrúa- og öldungadeildarinnar með Nielsen og Frederiksen. Athygli vekur að fljótlega eftir umræddan fund höfðu fjölmiðlar eftir Frederiksen að hún teldi að Trump Bandaríkjaforseti þráði enn að eignast Grænland þrátt fyrir að hafa dregið úr hótunum sínum um að taka eyjuna með valdi. Það væri mat hennar að lítið hefði í raun breyst hjá Trump. „Samkvæmt nokkrum heimildarmönnum sem voru í herberginu, auk annarra sem fengu upplýsingar um hvað gerðist, lét Graham þau bæði gjörsamlega heyra það. Kjarni málsins, að sögn tveggja viðstaddra, var sá að ef Trump forseti vildi Grænland myndi hann taka það og þau gætu lítið gert í því. Þau yrðu bara að afhenda heimskautaeyjuna og sætta sig við það,“ segir í frétt Puck. Samkvæmt heimildarmanni var Graham, sem er þingmaður Repúblikanaflokksins, í miklum ham og varð öldungadeildarþingmanninum Elissa Slotkin sem var á fundinum svo misboðið að hún stóð upp og gekk út. Þingmenn sent misvísandi skilaboð Fréttamaður Puck segir þetta hafa átt sér stað síðdegis á laugardag eftir að bandarískir þingmenn höfðu varið hálfum degi í að reyna að róa taugar fulltrúa Evrópuþjóða sem telji Bandaríkjastjórn hafa lítinn áhuga á því að verja álfuna. Tilgangurinn með heimsókn þingmannanna hafi jú verið að fullvissa Evrópuleiðtoga um áframhaldandi stuðning Bandaríkjanna og einkum þingsins, burtséð frá yfirlýsingum forsetans. Í stað þess hafi helgin reynst áminning um það að Grænlandskrísan geti vaknað aftur til lífsins hvenær sem er og væri jafnvel ekki enn liðin hjá. Graham áður valdið usla Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Graham veldur usla með ummælum sínum um Grænland. „Hverjum er ekki skítsama um það hver á Grænland?“ hafði Politico eftir honum á föstudag. Þetta lagðist meðal annars illa í Thom Tillis, öldungadeildarþingmann Repúblikanaflokksins, sem staddur var á öryggisráðstefnunni í Þýskalandi um helgina. Puck greinir frá því að á laugardagsmorgun hafi þingmaðurinn ruðst inn í stjórnstöð bandarísku þingmannasendinefndarinnar á Bayerischer Hof-hótelinu í München þar sem valdafólk mæti árlega á ráðstefnu til að ræða mikilvægustu þjóðaröryggismál samtímans. „Hann var brjálaður. „Sumir hafa verið að segja, Hverjum er ekki drullusama um það hver á Grænland,“ sagði Tillis, hoppandi á tánum á meðan hann skoðaði snakkúrvalið. „Nú, vitið þið hverjum er ekki drullusama? Frumbyggjum Grænlands – og frumbyggjum Norður-Karólínu, sem við höfum barist fyrir að hljóti viðurkenningu í yfir 130 ár!“ Tillis er fulltrúi Norður-Karólínu í öldungadeild Bandaríkjaþings en Graham kemur úr nærliggjandi Suður-Karólinu.
Grænland Bandaríkin Danmörk Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Tengdar fréttir Telur Trump enn girnast Grænland Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, telur að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, girnist enn Grænland, þó hann hafi dregið úr hótunum sínum um að taka eyjuna með valdi. Þessu var hún spurð að á öryggisráðstefnunni í München í gær og sagðist hún því miður telja að lítið hefði breyst hjá Trump. 15. febrúar 2026 07:46 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira
Telur Trump enn girnast Grænland Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, telur að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, girnist enn Grænland, þó hann hafi dregið úr hótunum sínum um að taka eyjuna með valdi. Þessu var hún spurð að á öryggisráðstefnunni í München í gær og sagðist hún því miður telja að lítið hefði breyst hjá Trump. 15. febrúar 2026 07:46