Allt að 57% lægra verð í Ísland Duty Free Heiðar Róbert Birnuson skrifar 19. febrúar 2026 11:01 Undanfarið hefur verið mikið rætt um verð í verslun Iceland Duty Free á Keflavíkurflugvelli, nýlega í samanburði við tollfrjálsa verslunina í Alicante á Spáni. Umfjöllun Morgunblaðsins sýnir að verð á Íslandi er hærra í völdum tilfellum en í Alicante. Val á tollfrjálsri samanburðarverslun vekur upp ýmsar spurningar. Áður en slíkur samanburður er dreginn fram sem sönnun fyrir óhagstæðum eða ójöfnuði er nauðsynlegt að skilja grunnforsendur markaða og rekstrarumhverfis. Það er auðvelt að setja upp þessi tvö dæmi, Ísland og Alicante, en í raun er það eins og að bera saman epli og appelsínur. Aðstæður í þessum löndum eru mjög ólíkar, bæði hvað varðar verðlag og kaupmátt, sem og rekstrarumhverfi. Svo handahófskennt að vörurnar eru ekki sambærilegar Mikilvægt er einnig að bera saman epli við epli en ekki appelsínur. Í fyrirsögn Morgunblaðsins er því haldið fram að verð í verslun Ísland Duty Free sé 67% hærra en á Alicante. Það sem kom ekki fram hins vegar er að í raun var verið að berasaman tvær mismunandi vörur frá sama vörumerki. „Handahófskenndi verðsamanburðurinn“ hjá Félagið atvinnurekenda (FA), sem fréttin byggir á, var svo „handahófskenndur“ að þeir báru saman mismunandi vörur frá sama vörumerki. Þar að auki var venjulegt verð í Ísland Duty Free borið saman við tímabundið tilboð hjá Alicante Duty Free. Hvergi minnist FA á að í Ísland Duty Free sé verð á sömu vöru allt að 57% lægra en í Vinbúðinni. Verðsamanburðurinn verður að vera sanngjarn Það er einnig áhugavert að FA skyldi velja að bera saman verð í verslun á einum ódýrasta áfengismarkaði Evrópu en þrátt fyrir það þá eru mörg dæmi um vörur sem eru ódýrari í Ísland Duty Free en þar. Kannski gæti næsta „handahófskennda“ könnun með fjórum vörum innihaldið dæmi eins og: Baileys Irish Cream 1L sem er 576 krónum ódýrari hjá Ísland Duty Free eða spænska vínið Protos Gran Reserva 0.75L sem kostar 292 krónur minna í Ísland Duty Free en á Spáni. • Baileys Irish Cream 1L 576 kr. ódýrara hjá Ísland Duty Free • Protos Gran Reserva 0,75L, - 292 kr. ódýrara hjá Ísland Duty Free • Don Julio 70 ára afmælisútgáfa – 991 kr. ódýrara hjá Ísland Duty Free Jafnvel í samanburði við Spán geta neytendur sparað með því að versla í Ísland Duty Free. Eina sem þarf er verðsamanburðurinn sé sanngjarn. Á Íslandi eru laun almennt mun hærri en í Suður-Evrópu. Meðalmánaðarlaun á Íslandi voru um 758.000 kr. á mánuði árið 2024, sem er eitt það hæsta meðal OECD-landa. Þetta leiðir óhjákvæmilega til hærra verðlags almennt eins og Félag atvinnurekenda ætti að vita mætavel. Meðallaun á Alicante-svæðinu á Spáni voru 354.000 kr. á sama tímabili. Fjöldi farþega sem fer um fríhafnirnar árlega skiptir einnig máli. Keflavíkurflugvöllur þjónaði um 8,16 milljónum farþega á síðasta ári. Alicante-Elche flugvöllur nálgast 18-20 milljónir farþega árlega, meira en tvöfalt fleiri en Keflavík. Tollfrjáls verslun starfar ekki í tómarúmi Mikilvægt er að halda umræðunni um rekstur fríhafna í réttum og hlutlægum farvegi. Fullyrðingar um að fyrirtækinu hafi verið „afhent einokunar- og markaðsráðandi staða án nokkurs eftirlits“, eins og haft er eftir Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, í Morgunblaðinu, endurspegla á engan hátt þann ramma sem rekstur Ísland Duty Free starfar innan. Reksturinn á Keflavíkurflugvelli var boðinn út í opnu og alþjóðlegu útboðsferli. Slíkt útboð felur í sér samkeppni um réttinn til rekstursins þar sem skýrar kröfur eru gerðar um þjónustu, verðstefnu, fjárfestingar og gæði. Samningurinn er bundinn skilmálum og undir eftirliti Isavia, sem er eigandi flugvallarins auk þess sem starfsemin lýtur íslenskum samkeppnislögum og eftirliti Samkeppniseftirlitsins. Að lokum er mikilvægt að hafa í huga að tollfrjáls verslun starfar ekki í tómarúmi. Neytendur bera saman verð við aðrar tollfrjálsar verslanir, við netverslanir og á innlendum markaði. Ef verðlagið stenst ekki væntingar hefur það bein áhrif á sölu og orðspor. Þannig er raunverulegt aðhald í gegnum val neytenda. Höfundur er rekstrarstjóri Ísland Duty Free. Greinin hefur verið uppfærð. Tafla með samanburði á áfengisgjaldi sem fylgdi upphaflega greininni var fjarlægð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Keflavíkurflugvöllur Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun