Drukkin í útsendingu og baðst afsökunar Sindri Sverrisson skrifar 19. febrúar 2026 11:31 Danika Mason er ein þekktasta íþróttafréttakona Ástralíu. Getty/Matt King Ein þekktasta íþróttafréttakona Ástralíu hefur beðist afsökunar á því að hafa verið drukkin í beinni útsendingu frá Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Forsætisráðherra Ástralíu sýndi henni fullan skilning.
Danika Mason kom inn í beina útsendingu í morgunþætti Channel 9 í Ástralíu í gær og ætlaði þar að veita innsýn í lífið á Ólympíuleikunum og fara yfir helstu íþróttafréttir. Eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan gekk henni ekkert frábærlega að koma orðunum frá sér, að minnsta kosti ekki með skýrum hætti, á meðan hún talaði um kaffiverðið á Ítalíu og reyndar einnig um eðlur (e. iguanas), væntanlega í tengslum við eitthvað sem þáttastjórnendur höfðu áður nefnt. Social media has lit up with speculation after popular Channel 9 sports and rugby league host Danika Mason appeared on morning television struggling to get her words out while covering the Winter Olympics in Italy.📌 READ MORE: https://t.co/HKql0kBobM pic.twitter.com/G3yCeBsJFj— The Advertiser (@theTiser) February 18, 2026 Viðbrögðin á samfélagsmiðlum voru blendin, samkvæmt frétt BBC, og vildu sumir að Mason yrði rekin á stundinni fyrir að vera drukkin í útsendingu á meðan að aðrir lýstu yfir ánægju með að hún virtist njóta sín á leikunum. „Kalda veðrið getur haft sín áhrif. Maður getur varla hreyft varirnar,“ sagði þáttastjórnandinn Karl Stefanovic sem var í stúdíóinu heima í Ástralíu, líkt og til að afsaka Mason. Heyra hafði mátt í honum hlæja þegar Mason reyndi að koma orðunum út úr sér. Mason baðst afsökunar í dag á framferði sínu, þrátt fyrir að forsætisráðherrann Anthony Albanese hefði til að mynda sagst standa með henni og að „hér væri ekkert að sjá“. „Það er í lagi með mig, ég skammast mín líklega bara smá,“ sagði Mason og hélt áfram: „Ég mislas gjörsamlega í aðstæður. Ég hefði ekki átt að fá mér drykk, sérstaklega ekki í þessum aðstæðum. Það er kalt, við erum hátt uppi, og það hjálpaði eflaust ekki til að ég var ekki búin að borða kvöldmat. En ég tek fulla ábyrgð og þetta er ekki í samræmi við þær kröfur sem ég geri til sjálfs míns,“ sagði Mason. „Hafandi sagt það þá þykir mér þetta virkilega leitt en ég er líka þakklát fyrir öll skilaboðin sem ég hef fengið,“ sagði Mason og Jayne Azzopardi, þáttastjórnandi, svaraði þá og sagði alla vita hve mikla vinnu hún legði á sig.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sparkað í punginn á dómaranum Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Yfir áttatíu erlendir skautarar svífa um í Laugardal Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Sjá meira