Fór á skeljarnar og vann svo Ólympíugull Sindri Sverrisson skrifar 23. febrúar 2026 10:01 Hilary Knight vann Ólympíugull eftir að hafa trúlofast Brittany Bowe sem ljómaði með hringinn á fingrinum. Samsett/Getty/Instagram Daginn áður en hún vann Ólympíugull í íshokkí fór Hilary Knight á skeljarnar í Mílanó og bað kærustu sinnar, skautahlaupsstjörnunnar Brittany Bowe, sem sagði já eins og sjá má í myndbandi sem þær birtu á samfélagsmiðlum.
Það var vel við hæfi að parið skyldi trúlofast á Ólympíuleikunum því samband þeirra hófst einmitt á Vetrarólympíuleikunum í Peking fyrir fjórum árum. Fyrstu stefnumótin voru þær því með grímu fyrir vitunum og plastgler á milli sín, á Covid-tímum, en þær gátu svo sannarlega séð bros hvorrar annarrar í Mílanó í síðustu viku. „Ólympíuleikar færðu okkur saman. Þessir leikar gera það að eilífu,“ skrifaði Knight með myndbandi af trúlofuninni á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Hilary Knight (@hilaryknight) Báðar eru þær stjörnur í sinni íþróttagrein. Knight hefur farið á fimm Ólympíuleika og á í sínu safni flesta heimsmeistaratitla eða tíu talsins. Bowe hefur að sama skapi unnið 91 verðlaun á heimsbikarmótum í skautahlaupi, sex HM-gull, sett fjögur heimsmet og tvívegis unnið til bronsverðlauna á Ólympíuleikum. Leikarnir í Mílanó voru í fullum gangi hjá þeim Knight og Bowe þegar sú fyrrnefndar ákvað að láta verða af því að biðja sinnar heittelskuðu, síðasta miðvikudag. Hún plataði Bowe til að koma út fyrir Ólympíuþorpið að hitta systur sína sem var að sjálfsögðu með í ráðabrugginu. Systirin bað svo parið um að stilla sér upp og sagðist vilja ná mynd af þeim með fallegan bakgrunn, og þá var komið að stóru stundinni. „Ég og systir mín erum alltaf að taka myndir,“ sagði Bowe. „Svo við Hilary vorum að stilla okkur upp en þá skipti hún um stellingu, tók hringinn upp úr jakkavasanum, fór á hnéð og bað mig um að giftast sér. Þetta var svo sætt og einfalt, og nákvæmlega það sem ég hefði óskað mér,“ sagði Bowe. Eins og fyrr segir spilaði Knight svo úrslitaleik með Bandaríkjunum gegn Kanada eftir trúlofunina, og fagnaði þar Ólympíugulli í háspennuleik. Bowe rétt missti hins vegar af verðlaunum í 1.500 metra hlaupi á föstudaginn, þegar hún endaði í 4. sæti.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Ótrúleg frumraun á Íslandi og heimsmetið var í hættu Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hyrox stefnir á Ólympíuleikana Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sparkað í punginn á dómaranum Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Yfir áttatíu erlendir skautarar svífa um í Laugardal Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira