„Ef þú tækir burt vélbyssurnar væri þetta ósköp venjulegt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 24. febrúar 2026 08:49 Arnar segir fara nokkuð vel um landsliðsmenn. Menn hafi lítið fundið fyrir óeirðum í borginni Queretaro. Oksana Vasylieva/Global Images Ukraine via Getty Images Óeirðir í Mexíkó hafa sín áhrif á strákana okkar í fótboltalandsliðinu sem eru staddir þar í landi. Landsliðsþjálfarinn segir stöðuna súrrealíska en allt gangi sinn vanagang, þrátt fyrir aukna öryggisgæslu. Sem stendur á leikurinn að fara fram, en það gæti breyst.
Ófremdarástand skapaðist víða í Mexíkó eftir að þarlendar hersveitir skutu glæpaforingjann Rúben Nemesio Oseguera, þekktur sem El Mencho, til dauða. Oseguera fór fyrir einum stærstu glæpasamtökum heims og viðbrögðin urðu hörð víða um land þar sem bílar voru brenndir og vegum lokað. Fjórum fótboltaleikjum var frestað, þar á meðal einum í borginni Queretaro, þar sem íslenska landsliðið er statt. Ástandið var þó verra víða í landinu en akkúrat í þeirri borg og frestunin öryggisráðstöfun. Eins og sakir standa mun Ísland spila við Mexíkó á aðfaranótt fimmtudags. „Þetta eru mjög óvenjulegar aðstæður og furðulegt að upplifa þetta frá fyrstu hendi. En við finnum svo sem ekkert mikið fyrir þessu öðruvísi en í fréttum. Við fáum reglulegar uppfærslur frá okkar starfsfólki og yfirvöldum. Það væsir ekkert um okkur en óneitanlega setur þetta fótboltann í annað samhengi,“ segir Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, um stöðuna. „Súrrealískt er eiginlega besta orðið til að lýsa þessu. Við að horfa á fréttir hérna gerir maður sér grein fyrir því að heimurinn er ansi stór og hættulegur. Við þurfum bara að fylgja fyrirmælum. Við erum ekkert að fara út í langa göngutúra til að skoða útsýnið. Það er fínasti Starbucks hérna rétt hjá. Við látum það duga,“ segir Arnar léttur. Fá stöðuuppfærslu á tveggja klukkustunda fresti Leikmenn voru eðlilega slegnir yfir tíðindunum en finna þó lítið fyrir ástandinu, og þá er gríðarleg öryggisgæsla í kringum íslenska liðið. „Hérna í kringum hótelið er mikil öryggisgæsla en maður verður svo sem ekkert mikið var við hana. Hún er ekki að bögga okkur. En við erum ekki blindir og sjáum hana alveg. Við reynum bara að halda okkar striki, æfingaplön og fundir. Þetta eru ákveðnar bubblur þessi landsliðsverkefni. Ef þú tækir í burtu lögregluna og vélbyssurnar væri þetta ósköp venjulegur gluggi,“ segir Arnar og hlær. Þá er bara að vona það besta, að ástandið versni ekki, og leikurinn geti að óbreyttu farið fram. „Staðan er tekin á tveggja til þriggja klukkutíma fresti. Við erum vel upplýstir. Ég held að það sé málið að vera bara í núinu. Eins og staðan er núna þá fer leikurinn fram sem þýðir að það eru tveir fundir í dag og góð æfing. Ef það breytist á næstu tveimur tímum þá verðum við að vera yfirvegaðir og taka góða ákvörðun í samráði við yfirvöld,“ segir Arnar. Ísland á að mæta Mexíkó þar ytra klukkan 2:00 aðfaranótt fimmtudags. Fari leikurinn fram verður hann sýndur beint og í opinni dagskrá á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta Mexíkó KSÍ Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Fleiri fréttir Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Sjá meira