Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Kjartan Kjartansson skrifar 25. febrúar 2026 08:08 Smárúta með fjórtán manns um borð lenti utan vegar í Fagradal rétt ofan við Reyðarfjörð í gærkvöldi, 24. febrúar 2026. Landsbjörg Björgunarsveitarfólk á Austurlandi hafði í nægu að snúast í hvassviðri og kófi í gærkvöldi. Fjórtán manns í smárútu sem lenti utan vegar í Fagradal var komið til aðstoðar og ferðafólki í nokkrum bílum á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.
Rútan lenti út af veginum rétt ofan Reyðarfjarðar rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi. Björgunarsveitin Ársól á Reyðarfirði var ræst út og flutti hún fjórtán manns sem voru um borð áfram til Egilsstaða þangað sem för hópsins var heitið, að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg. Rútan var skilin eftir utan vegarins. Þrjár björgunarsveitir voru kallaðar út til þess að þræða Mývatns- og Möðrudalsöræfi og fylgja ferðafólki þaðan þegar veginum var lokað. Tilkynning barst um bíl sem fór út af veginum í Langadal og vissi lögregla og björgunarsveitir af að minnsta kosti fimm bílum á leiðinni. Björgunarsveitarfólk keyrði svo vegi í Öræfum, veginn til Vopnafjarðar og hringveginn þangað til þær mættust. Á þeirri leið voru tveir bílar sem lent höfðu út af vegi, bíllinn í Langadal auk bíls við Skjöldólfsstaði. Farþegar þeirra voru teknir í bíla björgunarsveita og komið á áfangastað en bílar skildir eftir. Á annan tug farartækja var á ferðinni á leiðinni þrátt fyrir veðrið. Björgunarsveitir könnuðu einnig ferðir gönguskíðamanns sem sást hafði hverfa til fjalla í uppsveitum Skaftafellssýslu, á leið inn á Fjallabak. Sökum slæmrar veðurspár var ákveðið að kanna nánar með för mannsins. „Við skoðun Safe Travel kom í ljós að maðurinn hafði skilið eftir ferðaáætlun á vef Safe Travel. Haft var samband við hann í gegnum þær fjarskiptaleiðir sem hann hafði gefið upp og honum leiðbeint með komandi veður. Staðfesting kom frá gönguskíðamanninum um að allt væri í lagi hjá honum og hann ætlaði að hinkra í tjaldi sínu eftir að veður skánaði,“ segir í tilkynningu Landsbjargar.
Björgunarsveitir Múlaþing Fjarðabyggð Þingeyjarsveit Ferðaþjónusta Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira